Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 970/2001"

2 dómar fundust

Héraðsdómur Vestfjarða birt 15. apríl 2008

M-1/2008

Guðmundur Karvel Pálsson (Björn Jóhannesson hrl) gegn Birgi Karli Guðmundssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

Beiðni um dómkvaðningu matsmanns hafnað þar sem matsbeiðandi var ekki talinn hafa fært fyrir því fullnægjandi rök hvernig hann gæti að réttu lagi átt aðild að hugsanlegri kröfu á grundvelli matsbeiðninnar. Skilyrði 1. mgr. 77. gr. laga nr. 91/1991 um lögvarða hagsmuni matsbeiðanda var því ekki talið uppfyllt.

...Í reglugerð nr. 970/2001 um sérstakar ráðstafanir vegna krókabáta, sem sett var 24. desember 2001, var kveðið á um að Fiskistofa skyldi úthluta bátum með krókaaflamarksleyfi aukalega 1800 lestum...

Hæstiréttur birt 14. október 2004

89/2004

Tryggvi Ársælsson (Kristinn Hallgrímsson hrl) gegn Garðari Þorgrímssyni (Steingrímur Þormóðsson hrl)

T seldi G bát í desember 2000. Með reglugerð, sem birt var í desember 2001, var kveðið á um viðbótarúthlutun til krókabáta. Var viðbótarheimildum í ýsu og steinbít úthlutað til G samkvæmt reglugerðinni en við úthlutunina var byggt á veiðireynslu T fiskveiðiárið 1999/2000. Aðila greindi á um hvor þeirra ætti rétt á þeirri viðbótarúthlutun og krafðist T skaðabóta úr hendi G vegna hennar. Þótti niðurstaða málsins velta á því hvort annað mætti ráða af kaupsamningi aðila en að aflahlutdeild ætti að fylgja með í kaupum bátsins. Í kaupsamningi var nánar tilgreind sú aflahlutdeild í þorski sem fylgdi bátnum, en tekið fram að T væri heimilt að flytja af bátnum þá aflahlutdeild sem umfram var, en þar á meðal var öll hlutdeild bátsins í ýsu og steinbít. Var aflaheimildin verðlögð sérstaklega í samningnum. Varð ekki ráðið annað af samningnum en að ætlun þeirra hafi verið sú að kveða þar á um skiptingu aflaheimilda bátsins til fullnustu í eitt skipti fyrir öll. G gat því ekki samkvæmt ákvæðum samningsins vænst þess að hann fengi að ári liðnu aflahlutdeild í ýsu og steinbít sem byggð væri á aflareynslu T. Var skaðabótakrafa T því tekin til greina.

...Stefnandi krefst þess aðallega að stefndi verði dæmdur til að framselja sér viðbótarúthlutun aflaheimilda, 3468 kg af ýsu og 41047 kg af steinbít, samkvæmt viðbótarúthlutun, byggðri á reglugerð nr. 970...