Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 961/2005"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 4. mars 2022

149/2021

A (Björgvin Jónsson lögmaður, Þorgils Þorgilsson lögmaður, 4. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

A var handtekinn, úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðar vistaður á öryggisgangi fangelsisins að Litla-Hrauni vegna gruns um aðild að stórfelldri líkamsárás í fangelsinu. Með dómi Hæstaréttar 9. mars 2017 var A sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í málinu. Í kjölfarið höfðaði A mál gegn Í og krafðist miskabóta vegna vistunar hans á öryggisdeild, framkvæmdar hennar og nánar tilgreindra ummæla er höfð voru eftir forstjóra Fangelsismálastofnunar í fjölmiðlum. A hélt því fram að ummælin hefðu verið ærumeiðandi í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og gert forstjórann og forstöðumann fangelsisins vanhæf til að taka ákvarðanir um málefni hans. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var rakið að ákvörðun um vistun A á öryggisdeild sem og síðari framlenging hennar hafi átt sér fullnægjandi stoð í þágildandi lögum nr. 49/2005 um fullnustu refsinga. Ekki var talið liggja fyrir að aðstæður réttlættu ekki slíka ákvörðun. Hvorki var talið sýnt fram á að brotið hafi verið gegn andmælarétti A, rannsóknar-, meðalhófs- eða jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, né að ákvörðun um vistunina hafi falið í sér agaviðurlög í skilningi laga nr. 49/2005. Þá var talið ósannað að framkvæmd og tilhögun vistunarinnar hafi verið ólögmæt svo að bótaskyldu varðaði. Jafnframt var talið ósannað að forstjóri Fangelsismálastofnunar hafi gert sig vanhæfan í málefnum A með ummælum sínum í fjölmiðlum. Þá hafi ummælin ekki falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart æru og persónu A. Var Í því sýknað af kröfum A.

...Á þeim tíma sem hér um ræði hafi verið í gildi reglugerð nr. 961/2005 um fullnustu refsinga. Í 3. mgr. 80. gr. komi hins vegar skýrt fram að Fangelsismálastofnun...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. febrúar 2021

E-3065/2019

A (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Lykilorð: Meiðyrði. Miskabætur. Sýkna.

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu einstaklings um skaðabætur, meðal annars í tengslum við tilhögun á fangelsisvist hans.

...Á þeim tíma sem hér um ræði hafi verið í gildi reglugerð nr. 961/2005 um fullnustu refsinga. Í 3. mgr. 80. gr. komi hins vegar skýrt fram að Fangelsismálastofnun...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. apríl 2017

E-338/2016

A (Jóhannes Ásgeirsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Kröfu stefnanda um skaðabætur úr hendi stefnda íslenska ríkisins, vegna líkamsárásar er hann varð fyrir sem refsifangi í fangelsinu að Litla-Hrauni, var hafnað. Ekki var fallist á þá málsástæðu stefnanda að stefndi beri hreina hlutlæga ábyrgð á tjóni hans né heldur að beita skuli sakarlíkindareglunni og með því leggja sönnunarbyrðina á stefnda um að tjón stefnanda sé hvorki að rekja til sakar hans né manna sem hann ber ábyrgð á. Ekki var séð að orsakatengsl hafi verið til staðar varðandi tjón stefnda og háttsemi fangavarða en tjón hans má rekja til ásetningsverks sem erfitt eða útilokað er að afstýra sé ásetningur nægilega einbeittur.

...49/2005, um fullnustu refsinga, eða í reglugerð nr. 961/2005 um sama efni. Sönnunarbyrði um saknæma háttsemi manna sem stefndi geti borið ábyrgð á hvíli á stefnanda og enga...