Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 952/2003"

4 dómar fundust

Hæstiréttur birt 2. febrúar 2017

401/2016

E-þjónustan ehf (Björn Lárus Bergsson hrl) gegn Viðari Ólafssyni (Steingrímur Þormóðsson hrl)

V krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu E ehf. vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir er flugeldur sem V hafði keypt hjá E ehf. sprakk í höndum hans. Í dómi Hæstaréttar var talið nægilega sannað að kúla efst á flugeldinum hefði fallið af skömmu eftir að V bar eld að honum í því skyni að skjóta á loft.Var talið ósannað að orsökin hefðu verið rakin til atvika sem V bæri ábyrgð á og talið að flugeldurinn hefði verið haldinn ágalla í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð og að á þeim ágalla bæri E ehf. ábyrgð. Á hinn bóginn var talið að ekki yrði komist hjá því að virða V til stórkostlegs gáleysis að handleika hluta af flugeldinum með logandi vindil í annarri hendi. Var því talið rétt að hann bæri tjón sitt að hálfu, sbr. 9. gr. laga nr. 25/1991.

...Stefnandi vísar jafnframt til þess að í reglugerð nr. 952/2003 komi fram, að um varðveislu og flutning á sprengjanlegum efnum, svo sem púðri, fari eftir ákvæðum reglugerðar um sprengiefni...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. apríl 2016

E-4848/2014

Viðar Ólafsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn E-þjónustunni ehf, til réttargæslu, Verði tryggingum hf, Einari Sigmari Ólafssyni og íslenska ríkinu
Lykilorð: Galli. Gjafsókn. Líkamstjón.

Skaðabótamál.

...Stefnandi vísar jafnframt til þess að í reglugerð nr. 952/2003 komi fram, að um varðveislu og flutning á sprengjanlegum efnum, svo sem púðri, fari eftir ákvæðum reglugerðar um sprengiefni...

Hæstiréttur birt 22. mars 2016

386/2015

Slysavarnarfélagið Landsbjörg (Guðjón Ármannsson hrl) gegn Baldri Sigurðarsyni (Steingrímur Þormóðsson hrl)

B höfðaði mál gegn L og krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda L á líkamstjóni sem B varð fyrir þegar hluti skottertu sem hann kveikti í skaust í andlit hans með þeim afleiðingum að hann missti sjón á hægra auga. Hélt B því fram að L, sem teldist framleiðandi tertunnar og jafnframt dreifingaraðili hennar, bæri hlutlæga ábyrgð vegna þess tjóns sem rakið yrði til ágalla á tertunni, sbr. 6. gr. laga nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð. Í dómi Hæstaréttar kom fram að allar leiðbeiningar á tertunni hefðu samrýmst þeim kröfum sem gerðar væru til leiðbeininga í reglugerð nr. 952/2003 um skotelda að því undanskildu að ekki voru leiðbeiningar um að öryggisfjarlægð væri 25 metrar. Þar sem leiðbeiningarnar hefðu ekki verið jafn ítarlegar og ákvæði reglugerðarinnar mæltu fyrir um var talið að ágalli hefði verið á tertunni í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 25/1991 og að á þeim ágalla bæri L ábyrgð. Á hinn bóginn yrði ráðið af framburði vitna að B hefði ekki farið eftir þeim leiðbeiningum sem voru á tertunni og hann kvaðst hafa lesið áður en hann kveikti í henni en þær hefðu gefið honum tilefni til ríkrar aðgæslu meðal annars um að víkja vel frá tertunni. Þess í stað hefði hann staðið yfir tertunni og fært hana til eftir að hann kveikti í henni. Með þeirri háttsemi hefði hann sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og yrði því talinn meðábyrgur að slysinu. Var því talið rétt að hann bæri tjón sitt að hálfu, sbr. 9. gr. laga nr. 25/1991.

...Í dómi Hæstaréttar kom fram að allar leiðbeiningar á tertunni hefðu samrýmst þeim kröfum sem gerðar væru til leiðbeininga í reglugerð nr. 952/2003 um skotelda að því undanskildu að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2015

E-3376/2013

Baldur Sigurðarson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald hrl)

Skaðabótamál. Flugeldar. Eigin sök.

...Þá bendir stefnandi á að í töflu 5 í viðauka I með reglugerð nr. 952/2003, um „aðrar merkingar á skoteldum“ komi fram að á skottertum eins og þeirri sem...