Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 754/2002"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 5. mars 2021

46/2020

Karl Sigurhjartarson (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Veitum ohf (Jóna Björk Helgadóttir lögmaður)

K var kaupandi að heitu vatni af V ohf. til upphitunar á sumarbústað í Borgarfirði. Taldi hann vatnið vera gallað þar sem hitastig þess við afhendingu væri undir tilteknu viðmiði og lægra en hjá öðrum notendum á sama þjónustusvæði. K höfðaði mál á hendur V ohf. til endurgreiðslu kostnaðar að hluta miðað við tiltekið tímabil á þeim grundvelli að hann ætti rétt til afsláttar af því verði sem hann greiddi fyrir vatnið samkvæmt gjaldskrá. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að samningur notanda og hitaveitu kæmist sjálfkrafa á við upphaf viðskipta og að efni slíks samnings réðist af réttarheimildum. K hefði ekki fært fyrir því rök að þær réttarheimildir sem hefðu legið samningssambandinu til grundvallar væru ekki rétt settar eða skorti fullnægjandi lagastoð. V ohf. væri ekki skylt að afhenda K heitara vatn en tilgreint væri í tengiskilmálum að hitaveitan treysti sér til að afhenda notendum í sumarhúsabyggð. V ohf. hefði gert þær ráðstafanir sem ætlast mætti til svo að hitastig þess vatns sem K var afhent héldist í eðlilegu horfi samkvæmt þeim réttarheimildum sem um starfsemi V ohf. giltu og með því móti uppfyllt hitaviðmið samningssambandsins. Var V ohf. því sýknað af kröfum K.

...október 2002 þegar reglugerð nr. 754/2002 tók gildi. Öll rök hans ganga út frá því að 80°C séu sá hiti sem skilgreinir það hvort heitt vatn til húshitunar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2019

E-3902/2018

Karl Sigurhjartarson (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Veitum ohf (Íris Lind Sæmundsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Afsláttur. Galli. Samningur.

Stefnandi keypti vatn af stefnda til þess að hita upp sumarbústað sinn í Borgarbyggð. Vatnið sem hann fékk afhent var kaldara en vatn nágranna hans. Hitastig þess var þó hærra en nam almennu viðmiði stefnda. Gjaldskrá stefnda byggðist á magni en ekki á hitastigi. Stefndi taldi sig eiga rétt til afsláttar af gjaldi samkvæmt gjaldskránni vegna þess að vatnið sem stefndi afhendi honum væri gallað. Dómurinn tók fram að efni samningssambands kaupanda og seljanda heits vatns til húshitunar réðist ekki af samningi heldur af réttarheimildum. Stefndi var jafnframt talinn hafa gert þær ráðstafanir sem ætlast má til af honum til þess að halda hitastigi vatnsins sem stefnandi kaupir í „eðlilegu horfi“ samkvæmt þeim réttarheimildum sem giltu um sölu á heitu vatni. Stefndi afhenti vatn sem uppfyllti hitaviðmið samningssambands þeirra og því var vatnið ekki talið gallað. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda um afslátt af kaupverði vatnsins.

...október 2002 þegar reglugerð nr. 754/2002 tók gildi. Öll rök hans ganga út frá því að 80°C séu sá hiti sem skilgreinir það hvort heitt vatn til húshitunar...