Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 72/1999"
1 dómar fundust
Stjórnarskrá. Kaupskylda. Félagslegar íbúðir. Frávísunarkröfu frá héraðsdómi hafnað. Lögvarðir hagsmunir. Aðild. Lagaskil. Flýtimeðferð. Með yfirlýsingu húsnæðisnefndar H 19. júní 2000 til dánarbús HE var af hálfu H fallið frá kaupskyldu félagslegrar eignaríbúðar, sem afhent hafði verið HE 16. janúar 1990. V krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að H hefði verið óheimilt að falla frá kaupskyldunni. Var V talinn hafa lögvarða hagsmuni af að fá úr því skorið fyrir dómi, hvort H hafi borið að innleysa umrædda íbúð eða ekki. Frávísunarkröfu H var hafnað af þessum sökum, auk þess sem ekki var talin nauðsyn á samaðild H og dánarbúsins skv. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 91/1991, svo sem H hélt fram. Ágreiningslaust var að 84. gr. laga nr. 97/1993 um Húsnæðisstofnun ríkisins, sbr. 26. gr. laga nr. 58/1995, ætti við um hina umþrættu íbúð, en lagagreinin er enn í gildi eftir því sem við getur átt, sbr. ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál. Samkvæmt nefndri 84. gr. hefur sveitarstjórn kaupskyldu á félagslegum eignaríbúðum, byggðum samkvæmt lögum nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun ríkisins, fyrstu 15 árin frá afhendingu íbúðar. Eftir þann tíma á sveitarstjórn forkaupsrétt á þeim íbúðum, sem boðnar hafa verið til sölu. Talið var að eftir gildistöku laga nr. 44/1998 hefði áfram hvílt fortakslaus kaupskylda sveitarstjórna á félagslegum eignaríbúðum, byggðum samkvæmt lögum nr. 51/1980, sem koma til innlausnar innan lögákveðins kaupskyldutíma og að hvorki sveitarfélög né eigendur slíkra íbúða hafi nokkurt val í þeim efnum. Íbúðin hefði samkvæmt þessu verið háð kaupskyldu til 16. janúar 2005 og var því talið að H hefði verið óheimilt að falla frá kaupskyldu á henni, enda hafði H ekki tekist að sýna fram á að kaupskyldan væri reist á ómálefnalegum forsendum og færi í bága við eignarréttarákvæði og jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
...kafla laganna, en um réttindi og skyldur stefnanda er einnig fjallað í reglugerð nr. 72/1999 um varasjóð viðbótarlána. Stefnandi hefur meðal annars það hlutverk að greiða niður áhvílandi eldri...