Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 690/2020"
3 dómar fundust
K og B höfðuðu mál á hendur P ehf. og kröfðust skaðabóta vegna galla sem þau töldu vera á ísetningu glugga og svalahurða á fasteign þeirra en P ehf. seldi þeim gluggana og svalahurðirnar og annaðist ísetningu á þeim á árunum 2013 til 2016. Byggðu K og B kröfu sína á grundvelli laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Dómkvaddur matsmaður komst að þeirri niðurstöðu í matsgerð að sú að aðferð sem P ehf. beitti við ísetningu glugga og hurða hafi vikið verulega frá því sem telja verði fagleg vinnubrögð. Með hliðsjón af því þótti sannað að þjónusta P ehf., sem fólst í ísetningu glugga og hurða, hefði verið gölluð í skilningi 1. og 5. töluliðar 1. mgr. 9. gr. laga nr. 42/2000. Með vísan til yfirlýsingar P ehf. um ábyrgð á glugga- og hurðaefninu og upplýsinga sem fram komu á heimasíðu P ehf. um þjónustu fyrirtækisins við ísetningu glugga var talið að K og B hefðu mátt gera ráð fyrir að P ehf. ábyrgðist þá þjónustu í að minnsta kosti jafn langan tíma og glugga- og hurðaefnið, eða í 10 ár. Ábyrgð P ehf. á ísetningu glugga og hurða var því enn talin í gildi þegar málið var höfðað í apríl 2022. Við flutning málsins fyrir Landsrétti kom fram að umrædd fasteign hefði verið seld til Fasteignafélagsins Þórkötlu eftir uppkvaðningu héraðsdóms gegn greiðslu fulls söluverð samkvæmt lögum nr. 16/2024 um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Áður en fasteignin var seld höfðu K og B skipt út sex gluggum og einni svalahurð á austur- og suðurhlið hússins. Eftir stóðu tveir gluggar og ein svalahurð á vesturhlið þess, sem P ehf. hafði sett í húsið og ekki hafði verið skipt út. Þótti ekki unnt að líta svo á að K og B hefðu orðið fyrir tjóni vegna gallaðrar ísetningar þeirra. Á hinn bóginn þótti ljóst að þau hefðu orðið fyrir tjóni vegna þeirra sex glugga og svalahurðar, sem skipt hafði verið út áður en húsið var selt. Samkvæmt þessu var P ehf. dæmt til að greiða K og B skaðabætur sem næmu 70% af metnum kostnaði við úrbætur á þeim göllum sem voru á þjónustu P ehf. samkvæmt matsgerð.
...Verður að miða virðisaukann við það tímabil en stefnendur hafa þá getað sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við skiptingu og ísetningu glugganna sem var samkvæmt reglugerð nr. 690...
Seljendur þjónustu við gluggaísetningu dæmdir til að greiða tjón sem varð vegna galla við ísetninguna.
...Verður að miða virðisaukann við það tímabil en stefnendur hafa þá getað sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við skiptingu og ísetningu glugganna sem var samkvæmt reglugerð nr. 690...
Stefndu gert að greiða stefnendum eftirstöðvar kaupverðs fasteignar, sem voru 2.100.000 krónur, þó þannig að stefndu ættu rétt á afslætti sem næmi 688.613 krónur.
...Þegar málið var höfðað var endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu á verkstað 100%, sbr. reglugerð nr. 690/2020, sem breytt var með reglugerð nr. 1426/2020. Metinn kostnaður endurbóta lækkar sem...