Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 666/2001"
4 dómar fundust
Skipið Amelia Rose var skráð í íslenska skipaskrá árið 2014 með smíðaárið 2003. S ehf. óskaði eftir því við S í júlí 2021 að skráningu skipsins yrði breytt í skipaskrá þannig að það teldist gamalt skip en ekki nýtt, þar sem kjölur þess hefði verið lagður fyrir 1. janúar 2001 og teldist skipið því gamalt í skilningi 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001 um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum. Erindi S ehf. var synjað og var ákvörðun S staðfest af innviðaráðherra. Höfðaði S ehf. þá mál þetta og krafðist þess að ákvörðun S, sem „staðfest var með úrskurði innviðaráðherra“, yrði hrundið og lagt yrði fyrir S að skrá skipið sem gamalt skip í skipaskrá. Hæstiréttur taldi að réttara hefði verið að stefna íslenska ríkinu samhliða S þó brestur á því varðaði ekki frávísun málsins frá héraðsdómi. Þá taldi Hæstiréttur að framsetning fyrri hluta dómkröfu S væri ekki í samræmi við dómaframkvæmd en skilja yrði hana á þann veg að krafist væri ógildingar á endanlegri niðurstöðu málsins á stjórnsýslustigi. Síðari hluta dómkröfu S ehf. var hins vegar vísað frá héraðsdómi þar sem dómstólar hefðu ekki vald til að taka kröfuna til greina þar sem hún væri augljóslega þess efnis að hún kynni að vera háð sjálfstæðu mati stjórnvalds. Hæstiréttur taldi að taka yrði mið af því að S ehf. krafðist breytinga á gildandi skráningu skipsins frá 2014. Þá bæri ekkert þeirra gagna sem S ehf. byggði kröfu sína á með sér svo óyggjandi væri að kjölur skipsins hefði verið lagður fyrir umþrætt tímamark og skráning þess árið 2014 hefði verið reist á röngum forsendum. Þá voru upplýsingar frá mexíkóskum yfirvöldum taldar hafa það sönnunargildi sem kveðið er á um í 3. mgr. 71. gr. laga nr. 91/1991. Að þessu gættu hafi ekki verið ástæða til að leggja ríkari rannsóknarskyldu á S en raun bar vitni og raunar óljóst í hverju hún gat falist. Að endingu bar vitnisburður A framkvæmdastjóra AB ekki með sér nægilega afdráttarlausa afstöðu til þess hvort og þá hvenær kjölur skipsins var lagður í Mexíkó. Að öllu framangreindu virtu var S sýknað af kröfu S ehf.
...Í reglugerð nr. 666/2001, sbr. 3. gr. hennar, eru gerðar mismunandi kröfur til nýrra og gamalla skipa. Til grundvallar þeirri aðgreiningu liggja skilgreiningar í 2. gr. sömu reglugerðar. Samkvæmt...
S ehf. óskaði eftir því við S að skráningu á skipi í hans eigu, Amelía Rose, yrði breytt í skipaskrá þannig að það teldist gamalt skip en ekki nýtt, enda hefði kjölur skipsins verið lagður fyrir 1. janúar 2001 og teldist skipið því gamalt í skilningi 2. gr. reglugerðar nr. 666/2001 um öryggi í farþegaskipum í innanlandssiglingum. Erindi S ehf. var synjað og var ákvörðun S staðfest af innviðaráðherra. Höfðaði S ehf. þá mál og krafðist þess að ákvörðun S, sem staðfest var með úrskurði innviðaráðherra, yrði hrundið og að lagt yrði fyrir S að skrá skipið sem gamalt skip í skipaskrá. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að í dómaframkvæmd hefði verið litið svo á að ekki væri þörf á því að krefjast ógildingar á ákvörðun lægra setts stjórnvalds þegar æðra stjórnvald hefði kveðið upp úrskurð í viðkomandi stjórnsýslumáli. Því til samræmis var litið til þess hvort efni væri til þess að ógilda úrskurð ráðherra. Einnig var lagt til grundvallar að aðild og fyrirsvar í málinu væri í réttu horfi. Landsréttur vísaði til þess að óvíst væri við hvaða áfanga við smíðina skráð smíðaár væri miðað í haffærnisskírteini og öðrum gögnum frá siglingamálayfirvöldum í Mexíkó, þar sem skipið var smíðað. Svör þeirra við fyrirspurnum S yrðu enn fremur að teljast óljós og misvísandi. Lagði Landsréttur til grundvallar að enn væri ekki að fullu upplýst hvenær kjölur skipsins hefði verið lagður, þrátt fyrir framburð framkvæmdastjóra skipasmíðastöðvarinnar fyrir dómi. Því væri ekki efni til að fallast á kröfu S ehf. um að S yrði gert að breyta skráningu skipsins. Hins vegar var á það fallist með S ehf. að rannsókn stefnda og innviðaráðuneytisins hefði verið ófullnægjandi. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi en S að öðru leyti sýknaður af kröfum S ehf.
...21 Reglugerð nr. 666/2001 var upphaflega sett með stoð í lögum nr. 35/1993 um eftirlit með skipum en sækir nú lagastoð í skipalög frá 2021. Ekki eru gerðar...
Stefnandi krafðist þess að hrundið yrði stjórnvaldsákvörðun stefnda þar sem því var hafnað að breyta skráningu skips á þann veg að það væri skráð sem gamalt skip í stað þess að vera skráð sem nýtt skip í skilningi reglugerðar nr. 666/2001. Skráning í skipaskrá byggði á gögnum og upplýsingum um að skipið hefði verið smíðað árið 2003, sem aflað var frá stjórnvöldum í því ríki þar sem skipið var smíðað. Stefndi var sýknaður þar sem stefnanda tókst ekki að sýna fram á að kjölur skipsins hefði verið lagður fyrir 1. janúar 2001 þannig að það uppfyllti skilyrði reglugerðarinnar til umbeðinnar breytingar á skráningu þess.
...Engar aðrar reglur en reglugerð nr. 666/2001 gildi um farþegaskip yfir 24 metrum að lengd sem flytji 7 fleiri farþega en 12, en reglugerðin gildi ekki innan hafnarsvæða samkvæmt...
Fallist var á að stefndi bæri ábyrgð á tjóni stefnanda, er hann rann í bleytu í lyftu um borð í Herjólfi.
...47/2003, um eftirlit með skipum og að skoðun hafi leitt í ljós að fullnægt sé ákvæðum laganna og reglum settum samkvæmt þeim, þar með talið reglugerð nr. 666/2001...