Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 60/2000"
2 dómar fundust
A og B höfðuðu mál gegn Í til heimtu skaða- og miskabóta vegna tjóns sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir vegna ákvarðana M um að svipta þá vörslum alls sauðfjár sem þeir héldu á jörðinni X. Í dómi Landsréttar kom fram að aðgerðir M hefðu átt sér langan aðdraganda. Könnun hefði endurtekið farið fram á aðstæðum og aðbúnaði sauðfjár á jörðinni. Í framhaldi af þeim athugunum hefði frestur ítrekað verið veittur til að uppfylla kröfur M, sem átt hefðu sér stoð í lögum nr. 55/2013 um velferð dýra og reglugerðar nr. 60/2000. Samkvæmt því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að M hefði við undirbúning og töku ákvörðunar um að svipta A og B vörslum á sauðfénu hvorki brotið gegn rannsóknarreglu né meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 50/1993, sbr. 10. og 12. gr. laganna. Þá hefði andmælareglu jafnframt verið fylgt, sbr. 13. gr. sömu laga. Landsréttur vísaði einnig til þess að það neyðarúrræði sem M hefði gripið til í kjölfarið með slátrun sauðfjárins væri ekki eingöngu neyðarúrræði með tilliti til umráðamanns dýra heldur skyldi við ákvörðun um hvort því skyldi beita einnig líta til velferðar dýranna. Í því sambandi vísaði rétturinn til þess sem fram kæmi í gögnum er stöfuðu frá búfjáreftirlitsmönnum um bágborið ástand á fé áfrýjenda. Þá var enn fremur vísað til þess að vigtarseðlar hefðu borið með sér að ástand margra gripa hefði verið bágborið og talsvert verið um vanmetafé sem ætla mætti að hefði að mestu leyti mátt rekja til lélegrar fóðrunar, brynningar og slæms aðbúnaðar. Samkvæmt þessu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var dómurinn staðfestur um sýknu Í af kröfum A og B.
...Þá sagði í bréfinu að Matvælastofnun hygðist gera þær kröfur um úrbætur að öllu sauðfé yrði tryggt húsaskjól í samræmi við reglugerð nr. 60/2000 og innihélt bréfið nákvæmari fyrirmæli...
Tveir bændur ákærðir fyrir brot á lögum og reglugerðum á sviði dýraverndar og búfjárhalds, annar þeirra B, fyrir hlutdeild í tilteknum brotum hins, A. Ákærðu bæði sakfelld af hluta sakargifta en sýknuð af öðrum. A dæmt 30 daga skilorðsbundið fangelsi en B til greiðslu 50.000 króna sektar.
...15/1994, um dýravernd og reglugerð nr. 60/2000, um eftirlit með aðbúnaði og heilbrigði sauðfjár og geitfjár og eftirlit með framleiðslu kjöts og annarra afurða þeirra. Voru í kærunni...