Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 592/1994"
3 dómar fundust
Viðurkennd var bótaskylda varastefnda, útgerðarmanns, vegna líkamstjóns sem stefnandi hlaut í sjóslysi, þó þannig að stefnandi bar tjón sitt sjálfur að 1/3 hluta. Vátryggingafélag sem stefnt var aðallega var sýknað af dómkröfum stefnanda.
...Þá virðist vísun rannsóknarnefndar sjóslysa til þess að báturinn uppfylli ekki nema hluta af fríborðs- og stöðugleikaviðmiðum byggja á þeim misskilningi að báturinn falli undir reglugerð nr. 592/1994. Báturinn...
X var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa ráðist á A fyrir utan skemmtistað, slegið hann niður, sest klofvega yfir hann og slegið hann með bjórflösku, sem brotnaði við það, og slegið hann hnefahöggum svo A hlaut mar yfir vinstri augabrún, mar undir vinstra auga, bólgu á öllum hægri helmingi andlits og eymsli í kinnbeini og neðri kjálka og með því að beita brotinni flöskunni til að skera A þannig að hægra eyra var meira og minna tætt og eyrnavængur sundurskorinn, sbr. 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í 4 mánuði, en fullnustu hennar frestað og hún látin falla niður að liðnum 3 árum með hliðsjón af ungum aldri og sakaferli X. Þá var X gert að greiða A skaðabætur að fjárhæð 231.111 krónur.
...Um smíði og búnað slíkra báta gildir reglugerð nr. 592/1994, en hún nær til báta með mestu lengd allt að 15 metrum. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í...
G samdi við S um kaup á skipi sem G hafði í smíðum. Greindi G og S á um efni samningsins. Taldi G að skriflegur samningur sinn við S, þar sem kaupverð skipsins var tilgreint, hefði verið málamyndagerningur, enda hefði ekki verið unnt að tilgreina endanlegt verð skipsins á þeim tíma er samningurinn var gerður. Við útgáfu afsals fyrir skipinu krafði G S um 625.000 kr. viðbótargreiðslu á þeirri forsendu að framleiðslukostnaður hefði aukist vegna reglugerðarbreytinga á smíðatíma skipsins. Greiddi S upphæðina með fyrirvara en höfðaði síðar mál til endurgreiðslu hennar, auk þess sem hann krafði G um greiðslu vegna kostnaðar síns við endurbætur sem gerðar voru eftir að skipið var afhent. Talið var að leggja bæri kaupsamning og afsal til grundvallar lögskiptum G og S og var G dæmdur til að greiða S 625.000 kr. Ekki var talið sannað að G hefði tekið á sig að greiða kostnað við endurbæturnar sem fram fóru eftir afhendingu skipsins og var krafa S um endurgreiðslu kostnaðar ekki tekin til greina.
...Sú reglugerð hafi breytt eldri reglugerð nr. 592/1994 um smíði og búnað báta með mestu lengd allt að 15 metrum. Við birtingu reglugerðarinnar hafi hins vegar verið búið að...