Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 585/2010"

3 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. apríl 2025

E-1568/2024

A (Tinna Björk Gunnarsdóttir lögmaður) gegn Kópavogsbæ (Anna Kristín Guðmundsdóttir lögmaður)

Ágreiningur um skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem starfsmaður varð fyrir.

...laga um grunnskóla og reglugerð nr. 585/2010 um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla. Samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar beri skólastjóri ábyrgð á því að hlutast til um að...

Landsréttur birt 6. febrúar 2025

844/2023

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf og B (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur V og B og krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda úr frjálsri ábyrgðartryggingu B hjá V vegna líkamstjóns sem hún hlaut í starfi sínu sem grunnskólakennari hjá grunnskólanum C árið 2017. A varð fyrir árás af hálfu nemanda í matsal grunnskólans. Aðdragandi árásarinnar var sá að nemandinn var að elta yngri nemanda í matsalnum og rétti A út höndina til að fá nemandann til að hætta hlaupunum. Viðbrögð nemandans voru að kýla A með krepptum hnefa í vinstri kjálka. A greip þá um miðbúk nemandans aftan frá, hélt honum með bak hans í bringu hennar og kom nemandanum út úr matsalnum. Féll A eftir átök við nemandann og lenti á tröppum. Mun nemandinn þá hafa náð að skalla A í andlitið þannig hún vankaðist. Samkvæmt örorkumati var örorka A metin 10%. A byggði á því að vanræksla stjórnenda grunnskólans og gáleysi starfsmanna hefði leitt til þess að umræddur nemandi hefði verið hömlulaus og ráðist á hana umrætt skipti. Með dómi héraðsdóms voru V og B sýknuð af kröfum A. Kom fram að nemandinn hefði átt það til að vera óútreiknanlegur í hegðun, missa stjórn á sér og jafnvel beita ofbeldi og hefði A verið það kunnugt. Var talið að inngrip A umrætt sinn hefði verið á skjön við 1. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, sem bannar líkamlegt inngrip í mál nemenda í refsingarskyni. Féllst héraðsdómur á með V og B að frumorsök atviksins og tjóns A hefði verið röng viðbrögð A sjálfrar og það líkamlega inngrip sem hún ákvað að beita. Landsréttur taldi á hinn bóginn að þess yrði ekki fundið stoð að A hefði brotið gegn ákvæðum reglugerðar nr. 1040/2011 og að ekki hefði verið um að ræða líkamlegt inngrip í refsingarskyni heldur hafi ætlunin verið að grípa inn í óásættanlega og mögulega skaðlega hegðun nemandans. Þá var litið til þess að áður en atvikið átti sér stað hefði kennari, sem sérstaklega var ráðinn til að sinna nemandanum, tekið við umsjónarkennslu í bekk nemandans, og yrði ekki séð að annar starfsmaður hefði tekið við sambærilegri umsjón með nemandanum. Auk þess hefði hvorki atvikið sem leiddi til tjóns A né eldri atvik sem vörðuðu nemandann, og kölluðu á líkamlegt inngrip, verið skráð í samræmi við skyldu samkvæmt 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1040/2011. Að mati Landsréttar virtist sú vanræksla hafa leitt til þess að skólastjórnendur höfðu ekki rétta mynd af stöðu nemandans og þörf á ráðstöfunum til að gæta að öryggi nemenda og kennara innan skólans. Í ljósi þess var talið að saknæm vanræksla skólastjórnenda hefði átt þátt í því að A varð fyrir varanlegu líkamstjóni af völdum nemandans. Var því viðurkennd skaðabótaskylda B og réttur A til greiðslu bóta úr ábyrgðartryggingu B hjá V.

...584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum og í reglugerð nr. 585/2010 um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskólum, en ekki þykir...

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. júní 2018

E-851/2017

María Ólafsdóttir (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Hafnarfjarðarbæ, Sjóvá-Almennum tryggingum og hf (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Líkamstjón. Skaðabætur.

Dæmdar skaðabætur vegna líkamstjóns

...Stefndu telja einnig að uppfylltar hafi verið skyldur þær sem raktar eru í grunnskólalögum og í reglugerð nr. 585/2010 að því er varðar nemendur með sérþarfir. Hafi nemandanum verið...