Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 584/2010"
3 dómar fundust
A höfðaði mál á hendur V og B og krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda úr frjálsri ábyrgðartryggingu B hjá V vegna líkamstjóns sem hún hlaut í starfi sínu sem grunnskólakennari hjá grunnskólanum C árið 2017. A varð fyrir árás af hálfu nemanda í matsal grunnskólans. Aðdragandi árásarinnar var sá að nemandinn var að elta yngri nemanda í matsalnum og rétti A út höndina til að fá nemandann til að hætta hlaupunum. Viðbrögð nemandans voru að kýla A með krepptum hnefa í vinstri kjálka. A greip þá um miðbúk nemandans aftan frá, hélt honum með bak hans í bringu hennar og kom nemandanum út úr matsalnum. Féll A eftir átök við nemandann og lenti á tröppum. Mun nemandinn þá hafa náð að skalla A í andlitið þannig hún vankaðist. Samkvæmt örorkumati var örorka A metin 10%. A byggði á því að vanræksla stjórnenda grunnskólans og gáleysi starfsmanna hefði leitt til þess að umræddur nemandi hefði verið hömlulaus og ráðist á hana umrætt skipti. Með dómi héraðsdóms voru V og B sýknuð af kröfum A. Kom fram að nemandinn hefði átt það til að vera óútreiknanlegur í hegðun, missa stjórn á sér og jafnvel beita ofbeldi og hefði A verið það kunnugt. Var talið að inngrip A umrætt sinn hefði verið á skjön við 1. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, sem bannar líkamlegt inngrip í mál nemenda í refsingarskyni. Féllst héraðsdómur á með V og B að frumorsök atviksins og tjóns A hefði verið röng viðbrögð A sjálfrar og það líkamlega inngrip sem hún ákvað að beita. Landsréttur taldi á hinn bóginn að þess yrði ekki fundið stoð að A hefði brotið gegn ákvæðum reglugerðar nr. 1040/2011 og að ekki hefði verið um að ræða líkamlegt inngrip í refsingarskyni heldur hafi ætlunin verið að grípa inn í óásættanlega og mögulega skaðlega hegðun nemandans. Þá var litið til þess að áður en atvikið átti sér stað hefði kennari, sem sérstaklega var ráðinn til að sinna nemandanum, tekið við umsjónarkennslu í bekk nemandans, og yrði ekki séð að annar starfsmaður hefði tekið við sambærilegri umsjón með nemandanum. Auk þess hefði hvorki atvikið sem leiddi til tjóns A né eldri atvik sem vörðuðu nemandann, og kölluðu á líkamlegt inngrip, verið skráð í samræmi við skyldu samkvæmt 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1040/2011. Að mati Landsréttar virtist sú vanræksla hafa leitt til þess að skólastjórnendur höfðu ekki rétta mynd af stöðu nemandans og þörf á ráðstöfunum til að gæta að öryggi nemenda og kennara innan skólans. Í ljósi þess var talið að saknæm vanræksla skólastjórnenda hefði átt þátt í því að A varð fyrir varanlegu líkamstjóni af völdum nemandans. Var því viðurkennd skaðabótaskylda B og réttur A til greiðslu bóta úr ábyrgðartryggingu B hjá V.
...Um slíkan stuðning og hlutverk sveitarfélaga og framkvæmd sérfræðiþjónustu er fjallað nánar í reglugerð nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum og í...
Dæmdar skaðabætur vegna líkamstjóns
...nánari ákvæði í reglugerð nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum. Einnig vísist til reglugerðar nr. 585/2010 um nemendur með sérþarfir í...
Ágreiningur um forsjá.
...91, 2008 um grunnskóla og reglugerð nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum, sbr. 21. og 22. gr. laga nr. 90, 2008 um...