Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 304/2000"
2 dómar fundust
S höfðaði mál gegn Í til heimtu bóta vegna starfsloka hennar sem fangavörður. S hafði verið í veikindaleyfi í kjölfar aðgerðar og er veikindaréttur hennar var að renna út var henni tilkynnt bréflega að meðan hún hefði ekki heilsu til að gegna starfi fangavarðar yrði ekki um endurkomu hennar í það starf að ræða. Var í bréfinu vísað til vottorðs trúnaðarlæknis F um starfshæfni S. Tæplega ári síðar var S tilkynnt að henni væri veitt lausn frá störfum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að S hafi verið embættismaður í merkingu laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og um lausn hennar frá embætti færi eftir VI. kafla laganna. Taldi Hæstiréttur að með fyrrgreindu bréfi hafi verið lagður grunnur að þeirri ákvörðun að veita S lausn frá embætti með stoð í áliti trúnaðarlæknis F. Slík ákvörðun væri stjórnvaldsákvörðun í merkingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Hafi F borið að veita S færi á að kynna sér umrædd gögn og tjá sig um efni málsins áður en því hafi endanlega verið ráðið til lykta. Meðferð málsins hafi því ekki verið í samræmi við andmælareglu 13. gr. laga nr. 37/1993 og 1. mgr. 15. gr. laganna um aðgang að gögnum. Þá hafi málsmeðferðin einnig brotið í bága við 10. gr. sömu laga um rannsókn máls. Embættismissir S hafi því verið ólögmætur og bæri Í ábyrgð á honum eftir almennum reglum skaðabótaréttar. Voru S dæmdar bætur að álitum en ekki voru talin lagaskilyrði til greiðslu miskabóta.
...Fangelsismálastofnun hafi í þrígang óskað eftir vottorði frá trúnaðarlækni með heimild í kjarasamningi aðila og reglugerð nr. 304/2000 þannig að taka mætti ákvörðun um lausn stefnanda úr starfi vegna...
Stefnanda, sem hafði verið í veikindaleyfi um nokkurn tíma, var synjað um endurkomu í starf hjá stefnda. Krafði stefnandi stefnda um skaðabætur en stefndi var sýknaður af þeirri kröfu stefnanda.
...Fangelsismálastofnun hafi í þrígang óskað eftir vottorði frá trúnaðarlækni með heimild í kjarasamningi aðila og reglugerð nr. 304/2000 þannig að taka mætti ákvörðun um lausn stefnanda úr starfi vegna...