Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 248/2001"
1 dómar fundust
X var gefið að sök manndráp með því að hafa svipt A lífi með margþættu ofbeldi. Í héraði hafði hún verið dæmd í 10 ára fangelsi og háttsemi hennar heimfærð undir 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940. Með dómi Landsréttar var hún sakfelld fyrir brot gegn 211. gr. sömu laga og henni gert að sæta fangelsi í 16 ár. Hæstiréttur staðfesti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms og að viðbættum frekari röksemdum að ákæra málsins hefði fullnægt kröfum um skýrleika samkvæmt c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008. Þá rakti Hæstiréttur að meðal sérfræðilegra sönnunargagna í málinu væri útvíkkuð réttarkrufning tveggja réttarlækna sem og matsgerð dómkvadds matsmanns. Vægi þessara sérfræðilegu sönnunargagna var talið ráðast meðal annars af því hvernig staðið hefði verið að gerð þeirra og þeim rökstuðningi sem þar væri að finna fyrir niðurstöðum. Í því tilliti bæri einnig að horfa til nánari skýringa viðkomandi sérfræðinga fyrir dómi svo og þess hvernig niðurstöðurnar samræmdust öðrum gögnum málsins. Rétturinn taldi ekkert fram komið um að annmarkar hefðu verið á aðferð við mat á sönnunargildi sérfræðilegra gagna í hinum áfrýjaða dómi eða að aðrir ágallar væru á málsmeðferð eða samningu hans sem fallnir væru til þess að geta hafa haft áhrif á niðurstöðu málsins. Hæstiréttur taldi jafnframt að ekki yrði hnekkt efnislegri niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um mat á sönnun um dánarorsök A og aðkomu ákærðu að því að svipta hann lífi svo og um ásetning hennar til þess verknaðar. Var dómurinn því staðfestur um sakfellingu ákærðu fyrir manndráp af ásetningi og heimfærslu brotsins. Þá var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um ákvörðun refsingar. Loks voru staðfest ákvæði hins áfrýjaða dóms um greiðslu miskabóta, útlagðs kostnaðar og um greiðslu máls- og gjafsóknarkostnaðar í héraði og fyrir Landsrétti svo og um sakarkostnað.
...Einnig eru í reglugerð nr. 248/2001 um ritun dánarvottorða, réttarlæknisfræðilega líkskoðun, réttarkrufningu og tilkynningu til embættis landlæknis ítarlegri fyrirmæli um slík rannsóknarúrræði. Réttarlæknisfræðileg líkskoðun skal samkvæmt 87. gr. laga...