Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 180/2014"
3 dómar fundust
Stefnandi, sem hafði verið sagt upp störfum hjá stefnda, krafðist bóta úr hendi stefnda á grundvelli skírteinistryggingar flugmanna. Reisti stefnandi kröfur sínar á því að vegna ADHD greiningar og lyfjameðferðar ef þeim sökum væri hann ófær um að starfa sem flugmaður og hefði vegna þessa verið synjað um útgáfu heilbrigðisvottorðs. Stefndi krafðist sýknu og reisti þá kröfu sína m.a. á því að stefnandi hefði starfað hjá stefnda í 18 ár án þess að ADHD einkenna hefði orðið vart. Fyrst eftir uppsögn hefði hann verið greindur með ADHD og væri greiningin verulegum annmörkum háð. Með vísan til m.a. niðurstöðu dómkvadds matsmanns var það mat dómsins að slíkir annmarkar hefðu verið á greiningarferli stefnanda að ekki yrði lagt til grundvallar að hann væri ófær um að starfa sem flugmaður í skilningi laga og reglugerða á sviði samgöngumála. Stefnandi hefði því ekki sýnt fram á að skilyrði til greiðslu bóta úr tryggingunni væru fyrir hendi. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.
...Í reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi, sem sett var á grundvelli þágildandi laga nr. 60/1998 um loftferðir, er nánar vikið að viðmiðum um hæfni flugmanna. Með...
Með dómi frá 13. febrúar 2014 í máli nr. 604/2013 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að I ehf. væri skaðabótaskylt gagnvart H vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi milli þeirra, sem átt hafði sér stað 30. september 2010. H höfðaði í kjölfarið mál og krafðist skaðabóta er námu annars vegar jafngildi fullra launa í veikindaforföllum á ákveðnu tímabili og hins vegar jafngildi óskertrar tryggingarfjárhæðar samkvæmt svokallaðri skírteinistryggingu flugmanna. H lést á árinu 2016. M fékk leyfi til setu í óskiptu búi í kjölfarið og tók við aðild að málinu. Taldi Hæstiréttur að M ætti rétt til bóta vegna tilkalls H til launa í veikindaforföllum. Var m.a. vísað til þess að H hefði afhent vottorð 29. september 2010 og yrði að leggja vottorðið til grundvallar um upphaf forfalla þótt ákvæði væri í kjarasamningi um að staðfesta þyrfti forföll flugmanns til að greiðsluskylda vinnuveitanda stofnaðist. Þá gæti I ehf. ekki með afturvirkum hætti endurskoðað grundvöll þess hvernig staðið hefði verið að því að binda enda á ráðningarsambandið við H og yrði I ehf. að bera af því allar afleiðingar að slíkt hefði verið gert með ólögmætum hætti. Að því er varðaði kröfu um greiðslu bóta í skjóli skírteinistryggingar flugmanna taldi Hæstiréttur að bótaskylda yrði að ráðast af skýringu á ákvæðum kjarasamnings þar sem vátryggingaskilmálar þeirrar tryggingar sem I ehf. hafði tekið settu strangari skilyrði fyrir greiðslu óskertrar skírteinistryggingar en mælt hefði verið fyrir um í kjarasamningnum. Þá var talið að þar sem I ehf. hefði rofið ráðningarsamband sitt við H með ólögmætum hætti yrði I ehf. að bera hallann af því að ekki lægju fyrir fullkomnar upplýsingar um heilsufar H á tilteknu tímabili. Hefði I ehf. ekki fært neitt fram sem hnekkti því að á tímabilinu frá 29. september 2010 til dauðadags hefði heilsufar H verið með þeim hætti að honum hefði ekki verið unnt að öðlast á ný réttindi sín sem atvinnuflugmaður og að hann hefði því misst varanlega flugskírteini sitt í skilningi kjarasamningsins frá og með haustinu 2010. Ætti M því jafnframt rétt á bótum á þeim grundvelli.
...Umrædd reglugerð hafi nú verið felld úr gildi og við tekið reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi. Með henni hafi verið innleiddar samsvarandi reglur Evrópusambandsins, m.a. reglugerð...
Stefnandi var flugstjóri hjá Icelandair. Var honum sagt upp störfum með ólögmætum hætti. Höfðaði hann mál á hendur flugfélaginu til greiðslu skaðabóta. Voru honum dæmdar skaðabætur sem jafngildi launa í veikindaforföllum og jafngildi skírteinistryggingar flugmanna.
...Umrædd reglugerð hafi nú verið felld úr gildi og við tekið reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi. Með henni hafi verið innleiddar samsvarandi reglur Evrópusambandsins, m.a. reglugerð...