Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 160/2009"

6 dómar fundust

Landsréttur birt 12. júní 2025

458/2024

Samhentir Kassagerð hf (Þórður Bogason lögmaður) gegn Papco hf (Gunnar Egill Egilsson lögmaður)

Ágreiningur málsins laut að notkun P hf. á auðkenninu „STERKIR“. Í dómi Landsréttar kom fram að heildarmynd merkja S hf. sem hann byggði rétt sinn á, „STERKUR“, fæli í sér nægjanleg sérkenni til að þau teldust skráningarhæf í skilningi 1. mgr. 13. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki og að stofnast hefði vörumerkjaréttur S hf. á grundvelli notkunar, sbr. 2. tölulið 1. mgr. 3. gr. sömu laga, þegar krafa um lögbann var lögð fram. Aftur á móti hefði S hf. ekki sýnt fram á að hætt væri við ruglingi milli merkjanna í skilningi 2. töluliðar 4. gr. laganna. Á hinn bóginn væri ótvírætt að notkun P hf. á auðkenninu „STERKIR“ á þann hátt sem P hf. gerði væri til þess fallin að valda ruglingi við vöru S hf. í skilningi síðari málsliðar 15. gr. a laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Var því fallist á að P hf. hefði brotið gegn S hf. með ólögmætum hætti og viðurkennt að P hf. væri óheimilt að framleiða, flytja inn, dreifa, selja eða ráðstafa nánar tilgreindum plastpokum auðkenndir með heitinu „STERKIR“ og lögbann við þeim athöfnum staðfest.

...57/2005 og reglugerð nr. 160/2009. Í öðrum kafla laganna séu óréttmætir viðskiptahættir sagðir bannaðir og svo sé að finna skilgreiningu á óréttmætum viðskiptaháttum í þriðja kafla, sem stefnandi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. maí 2024

E-6251/2023

Samhentir Kassagerð hf (Karen Björnsdóttir lögmaður) gegn Papco fyrirtækjaþjónustu ehf (Gunnar Egill Egilsson lögmaður)

Hafnað var kröfu fyrirtækis um staðfestingu lögbanns við m.a. framleiðslu og sölu á tilteknum plastpokum. Nánar tiltekið var ætlaður vörumerkjaréttur stefnanda ekki talinn geta leitt til þess að fallist yrði á dómkröfur hans í málinu. Þá var stefndi ekki talinn hafa gerst brotlegur við ákvæði laga nr. 57/2005 eða laga nr. 131/2020 með því að selja plastpoka með merkinu „STERKIR“.

...57/2005 og reglugerð nr. 160/2009. Í öðrum kafla laganna séu óréttmætir viðskiptahættir sagðir bannaðir og svo sé að finna skilgreiningu á óréttmætum viðskiptaháttum í þriðja kafla, sem stefnandi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2017

E-1993/2015

Drífa ehf (Steinunn Guðmundsdóttir hdl) gegn Hórasi ehf og Álafossi ehf (Birgir Már Björnsson hdl)

Sýknað af viðurkenningarkröfu stefnanda sem meðal annars var rökstudd með vísan til höfundaréttar.

...57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, og reglugerð nr. 160/2009, um viðskiptahætti, sem teljist undir öllum kringumstæðum óréttmætir. Stefnandi byggir á því að brot gegn hverjum þessa...

Hæstiréttur birt 19. september 2013

519/2013

Hagsmunasamtök heimilanna (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Lykilorð: Kærumál. Lögbann.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu H um að felld yrði úr gildi ákvörðun sýslumanns um að taka ekki til greina kröfu hans um lögbann við nánar tilgreindum athöfnum L hf. H reisti kröfu sína á lögum nr. 141/2001 um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda. Hæstiréttur féllst ekki á að af þeim sökum ætti ákvæði 1. töluliðar 3. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl. ekki við um kröfu H en þar segir að lögbann verði ekki lagt við athöfn ef talið verði að réttarreglur um refsingu eða skaðabætur fyrir röskun hagsmuna gerðarbeiðanda tryggi þá nægilega. Vísaði Hæstiréttur um þetta til dóms réttarins í máli nr. 636/2012. Taldi Hæstiréttur að í tilteknum yfirlýsingum L hf. fælist næg trygging fyrir því að hagsmunir lántakenda yrðu ekki fyrir borð bornir og hefði H ekki lagt fram haldbær gögn sem styddi það að ástæða væri til að óttast um greiðslugetu L hf. Samkvæmt því stæði 1. töluliður 3. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990 því í vegi að lögbann næði fram að ganga. Þegar af þeirri ástæðu var hinn kærði úrskurður staðfestur.

...50/2008 og reglugerð nr. 160/2009 um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir. Í 3. tl. 1. gr. laga nr. 141/2001 sé talin upp tilskipun ráðsins 87...

Hæstiréttur birt 15. október 2012

636/2012

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Landsbankanum hf (Aðalsteinn E. Jónasson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Lögbann.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu H og T um að lagt yrði lögbann við nánar tilgreindum athöfnum L. Talið var að H og T væru bærir til að bera upp kröfu um lögbann hér á landi til að vernda heildarhagsmuni neytenda eftir ákvæðum laga nr. 141/2001. Hins vegar þótti 1. töluliður 3. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990 standa því í vegi að lögbann gæti náð fram að ganga. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

...50/2008 og reglugerð nr. 160/2009, um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir. Tilskipun ráðsins 87/102/EB frá 22. desember 1986, um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. september 2012

K-4/2012

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Landsbankanum hf (Gunnar Viðar hdl)

Staðfest var ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík um að synja beiðni sóknaraðila um lögbann, þar sem hvorki voru uppfyllt skilyrði til að verða við beiðninni samkvæmt lögum nr. 141/2001lögum nr. 31/1990.

...50/2008 og reglugerð nr. 160/2009, um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir. Tilskipun ráðsins 87/102/EB frá 22. desember 1986, um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum...