Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 144/2009"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 4. júní 2026 kl. 16:22

455/2025

Livio AB (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður, Stefán Árni Auðólfsson lögmaður, 4. prófmál) gegn Ingunni Jónsdóttur (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður)

Í málinu var deilt um uppgjör eftirstöðva kaupverðs vegna kaupa L á eignarhlutum I í félaginu I ehf. Laut ágreiningurinn að því hvort I hefði brotið gegn umsömdum trúnaðarskyldum um samkeppnisbann sem firrti hana rétti til greiðslu eftirstöðva kaupverðsins. Með hinum áfrýjaða dómi var L gert að greiða I eftirstöðvar kaupverðsins auk nánar tilgreindra vaxta. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ákvæði um samkeppnisbann hefðu í dómaframkvæmd gjarnan verið túlkuð þröngt og að sá sem héldi fram broti gegn slíku ákvæði bæri almennt sönnunarbyrði fyrir þeirri staðhæfingu sinni. Ekki var talið að nánar greind áskorun L í héraði og sú staðreynd að I gaf þar ekki aðilaskýrslu breytti neinu um sönnunarstöðu í málinu. Landsréttur tók fram að samkeppnisákvæðið hefði falið í sér að I væri óheimilt í þrjú ár að stunda eða taka þátt í nánar tilgreindri starfsemi. Ekki lægju fyrir gögn sem styddu það að I hefði tekið þátt í slíkri starfsemi á tímabilinu. Þá hefði stofnun eiginmanns hennar á tveimur einkahlutafélögum á tímabilinu ekki falið í sér brot á samningsákvæðinu og yrði raunar ekki séð að eiginmaðurinn eða félögin hefðu hafið starfsemi í skilningi ákvæðisins á umræddu þriggja ára tímabili. Að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

...55/1996 um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, sbr. reglugerð nr. 144/2009 um tæknifrjóvgun. Í svari ráðuneytisins frá 1. febrúar 2024 segir að fyrirtækið Livio...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. apríl 2026 kl. 14:30

E-7460/2025

A (Unnur Ásta Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn Livio Reykjavík ehf (Stefán Árni Auðólfsson lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda, sem geymsluaðila kynfrumna í sameiginlegri eigu stefnanda og fyrrverandi eiginkonu, um miskabætur eftir að stefndi eyddi kynfrumunum í kjölfar sameiginlegrar beiðni, sem stefnandi vildi síðan draga til baka en fyrrverandi eiginkonan ekki. Ekki var talið sýnt fram á að skilyrði miskabóta væru fyrir hendi í málinu.

...Varðveisla stefnda á kynfrumunum hafi byggt á síðastnefndu ákvæði laganna og nánari útfærslu í reglugerð nr. 144/2009. Hvoru tveggja lög nr. 55/1996 og reglugerð nr. 144/2009 byggi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. maí 2025

E-1352/2024

Ingunn Jónsdóttir (Stefán Örn Stefánsson lögmaður) gegn Livio AB (Leifur Valentín Gunnarsson lögmaður)

Deilt var um hvort stefndi skyldi greiða stefnanda tiltekna fjárhæð sem nam eftirstöðvum kaupverðs vegna eignarhluta í félagi. Varnir stefnda byggðust á því að stefnandi hefði brotið gegn samningsbundnum trúnaðarskyldum og með því firrt sig rétti til greiðslunnar. Talið var ósannað að stefnandi hefði gerst sek um slík brot. Því var fallist á kröfu stefnanda.

...1996 um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumu- rannsókna, sbr. reglugerð nr. 144/2009 um tæknifrjóvgun. Í svari ráðuneytisins frá 1. febrúar 2024 segir að fyrirtækið Livio...