J, M og S keyptu jörðina Hróðnýjarstaði í Dalabyggð af D og E. Í tengslum við kaupin var meðal annars samið um að J, M og S myndu greiða tiltekin útgjöld vegna heyskapar sumarið 2017. Í tengslum við uppgjör vegna afsals óskuðu J, M og S eftir tilteknum upplýsingum um útgjöld vegna heyskapar og í svari D og E kom meðal annars fram að tún Múlagrundar í Saurbæ hefðu gefið 480 heyrúllur. Reikningur vegna útgjalda við heyskap var greiddur samhliða uppgjöri vegna afsalsgerðar 19. október 2019. Í kjölfar greiðslu kom í ljós að 150 heyrúllur af þeim 480 sem tún Múlagrundar í Saurbæ hefðu gefið væru enn þar og neituðu D og E að verða við kröfu J, M og S um flutning þeirra til Hróðnýjarstaða. J, M og S kröfðust skaðabóta sem námu fjárhæð áætlaðs endurgjalds fyrir sambærilegar heyrúllur sem og flutningskostnaðar og studdu þá kröfu við mat dómkvadds matsmanns. Í málinu deildu aðilar um hvort D og E hafi borið skylda til að afhenda umræddar 150 heyrúllur að Hróðnýjarstöðum eða hvort þeim hafi verið heimilt að skilja þær eftir á túni Múlagrundar í Saurbæ J, M og S til ráðstöfunar. Óumdeilt var að samningur komst á um kaup á umræddum 150 heyrúllum en J, M og S höfðu hvorki rift kaupunum né krafist ógildingar á þeim. Í matsgerð kom fram að við skoðun matsmanns hafi allar heyrúllurnar verið til staðar að Múlagrund í Saurbæ og við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti kom jafnframt fram að þær væru þar enn J, M og S til ráðstöfunar. Þá voru engin gögn lögð fram um að heyrúllurnar lægju undir skemmdum eða hefðu orðið fyrir tjóni. Af því leiddi að J, M og S höfðu ekki fært sönnur á tjón sem næmi verðmæti heyrúllanna og voru D og E þegar af þeirri ástæðu sýknuð af þeim hluta kröfugerðar J, M og S. Krafa J, M og S um skaðabætur fyrir flutningskostnað heyrúllanna var byggð á því að samkvæmt fyrri málslið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup hefði afhendingarstaður heyrúllanna átt að vera að Hróðnýjarstöðum sem óumdeilt væri að hefði verið atvinnustöð eða heimili D og E er kaupin áttu sér stað. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar D og E upplýstu J, M og S um afrakstur heyskapar sumarsins 2017 hafi komið skýrt fram að tún annarrar jarðar í þeirra eigu, Múlagrundar í Saurbæ, hefðu gefið 480 heyrúllur. Var lagt til grundvallar að J, M og S hafi vitað að hey sem kynni að koma af túnum annarra jarða en Hróðnýjarstaða væri þar að finna en ekki að Hróðnýjarstöðum. Afhendingarstaður umræddra 150 heyrúlla var því talinn hafa verið að Múlagrund í Saurbæ en ekki að Hróðnýjarstöðum, sbr. síðari málslið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 50/2000. Voru J, M og S látnir bera hallann af sönnunarskorti um að samið hefði verið um að D og E ættu á sinn kostnað að annast flutning heyrúllanna að Hróðnýjarstöðum. Voru D og E því sýknuð af kröfum J, M og S.
...242/2017, um breytingu á reglugerð nr. 1151/2016, um stuðning við sauðfjárrækt. Þessi breyting mun hafa falist í því að við reglugerðina var bætt því ákvæði til bráðabirgða að...