Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 7. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
Einar Finnbogason (
Hilmar Magnússon hrl)
gegn
SOS, eignum ehf, Pálma, B. Almarssyni, Fasteignamiðluninni, Hámúla ehf og Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæzlu (
Halldór B. Halldórsson hdl)
Stefnandi seldi stefnda SOS eignum íbúð. SOS eignir stóðu ekki við greiðslu kaupsamningsins. Stefnandi krafði kaupanda um greiðslu, en gerði auk þess kröfu á meðstefndu um skaðabætur vegna tjóns hans af vanefndum kaupanda. Kröfur stefnanda á hendur stefnda SOS eignum ehf. teknar til greina en aðrir stefndu sýknaðir.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli E á hendur F og B var vísað frá dómi. Málið átti rætur að rekja til sölu E á fasteign til S. E kvað kaupandann hafa vanefnt samninginn og höfðaði mál á hendur S og fasteignasalanum P. E höfðaði síðar annað mál þar sem hann sakaukastefndi fasteignasölunni F og fasteignasalanum B en kaupsamningurinn um eignina var gerður á F og B var þar löggiltur fasteignasali. Héraðsdómur taldi að uppfyllt væru skilyrði 3. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til höfðunar sakauka á hendur F en ekki B og vísaði því kröfu á hendur B frá dómi. Þá taldi héraðsdómur að kröfurnar væru ekki samrættar í skilningi 1. mgr. 19. gr. laganna þar eð krafa E á hendur S var reist á efndaskyldu samkvæmt kaupsamningi en á hendur F á sök starfsmanna hans og vísaði því kröfu á hendur F frá dómi. Niðurstaða héraðsdóms hvað varðar B var staðfest með vísan til forsendna. Hvað varðar F féllst Hæstiréttur á með héraðsdómi að ákvæði 3. mgr. 19. gr. laganna girtu ekki fyrir málsókn gegn F en taldi hins vegar að skilyrði 1. mgr. greinarinnar væru fyrir hendi til að sækja B og F í sama máli. Breytti engu þar um þó kröfur á hendur einum þeirra væru reistar á efndaskyldu en sök gagnvart öðrum. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi hvað varðar F og lagt fyrir dómara að taka þann þátt málsins til efnismeðferðar.
SJG keypti íbúð að Nesvegi í Reykjavík af H, SV og V með kaupsamningi 15. október 2004. Taldi SJG eignina haldna galla þar sem stállagnir í veggjum, skólp-, neysluvatns- og hitalagnir íbúðarinnar væru ónýtar, útveggur hennar morkinn auk þess sem upplýsingar um aldur íbúðarinnar hefðu ekki verið réttar. Krafðist SJG skaðabóta eða afsláttar úr hendi H, SV og V. Í niðurstöðu Hæstaréttar var fallist á það með héraðsdómi að fasteignin hefði verið haldin göllum og var SJG því dæmdur afsláttur af kaupverði íbúðarinnar sem ákveðinn var 8% af kaupverði. Svaraði sá afsláttur til ætlaðrar verðmætisrýrnunar á fasteigninni vegna gallanna að frádreginni verðmætisaukningu vegna endurnýjunar umræddra hluta en H, SV og V höfðu hvorki með yfirmatsgerð né á annan hátt lagt grundvöll að því að þessari niðurstöðu yrði hnekkt fyrir Hæstarétti.
Seljendur fasteignar dæmdir til að greiða kaupanda afslátt vegna galla á eigninni. Fasteignasali sýknaður af kröfum kaupandans um skaðabætur.
Stefnda sýknuð af kröfu um greiðslu söluþóknunar vegna sölu fasteignar en dæmd til þess að greiða kostnað vegna auglýsinga.