Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á þjóðminjalögum, nr. 88/1989, sbr. lög nr. 43/1991. nr. 98/1994

Landsréttur birt 10. maí 2024

4/2023

Brúarreykir ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn Bjarna Bærings Bjarnasyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Með dómi Landsréttar 5. apríl 2019 í máli nr. 594/2018 var staðfest niðurstaða héraðsdóms um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð BB á tjóni sem hann hafði sem framkvæmdastjóri B ehf. valdið við búrekstur félagsins. Taldi Landsréttur að BB hefði verið ábyrgur fyrir því að rekstur búsins væri í löglegu horfi og að hann hefði vanrækt starfsskyldur sínar. Auk þess hefði sú ráðstöfun að selja allan bústofn í eigu B ehf. fallið utan heimilda framkvæmdastjóra samkvæmt 2. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. B ehf. höfðaði í kjölfarið mál á hendur BB til heimtu skaðabóta sem félagið taldi að mætti rekja til hinnar saknæmu háttsemi. Í aðdraganda málshöfðunar aflaði B ehf. matsgerðar til að færa sönnur á tjón sitt. Í dómi Landsréttar kom fram að á matsgerðinni væru hinir ýmsir annmarkar sem væru þess eðlis að ekki væri unnt að horfa til hennar til stuðnings aðal- og varakröfu B ehf. Í málinu krafðist B ehf. þess til þrautavara að félaginu yrðu dæmdar lægri bætur að álitum en í dómi héraðsdóms hafði verið fallist á þá kröfu og B ehf. dæmdar bætur að fjárhæð 8.000.000 króna. Að teknu tilliti til þess að B ehf. hefði kosið að haga kröfugerð sinni með þeim hætti að draga skyldi söluandvirði greiðslumarks og nánar tilgreindra varanlegra rekstrarfjármuna frá kröfu um ætlað rekstrartjón var BB jafnframt sýknaður af þessari kröfu á þeim grunni að ekki yrði ráðið af gögnum málsins að tjónið hefði numið hærri fjárhæð en söluandvirði þessara eigna.

Héraðsdómur Vesturlands birt 7. desember 2022

E-180/2021

Brúarreykir ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn Bjarna Bærings Bjarnasyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Bótakrafa einkahlutafélags á hendur fyrrum framkvæmdastjóra félagsins sem jafnframt var og er eigandi helmings hlutafjár. Bótaábyrgð áður verið viðurkennd með dómi, í málinu því einungis tekist á um fjárhæð bóta.