Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 58. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 17. október 2013

191/2012

Jan, Anfinn og Wahl (Oddgeir Einarsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. mars 2012. Hann krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 1.000.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 7. nóvember 2010 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti, en til vara að málskostnaður fyrir Hæstarétti verði felldur niður. Stefndi krefst aðallega staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti, en til vara að krafa áfrýjanda verði lækkuð og málskostnaður felldur niður. Með bréfi innanríkisráðuneytisins 3. júní 2013 var áfrýjanda veitt gjafsókn fyrir Hæstarétti. Er gjafsóknin takmörkuð við öflun ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í málinu og nær ekki til annarra þátta þess.

Hæstiréttur birt 25. nóvember 2010

166/2010

Alexander, Kendrick og Alonzo (Lárentsínus Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigmundur Hannesson hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. mars 2010. Hann krefst þess að ákvörðun bótanefndar samkvæmt lögum nr. 69/1995 um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota 3. október 2006 verði felld úr gildi og stefnda gert að greiða sér 3.100.000 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 20. ágúst 2006 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst aðallega staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti, en til vara að krafa áfrýjanda verði lækkuð og málskostnaður felldur niður. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur. Rétt er að aðilarnir beri hvor sinn kostnað af málinu fyrir Hæstarétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2009

E-3632/2009

Alexander Kendrick Alonzo (Lárentsínus Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigmundur Hannesson hrl)

Talið var að stefnandi, sem starfaði hér á landi í her Bandaríkjanna,hefði verið staddur hér á landi um stundarsakir í skilningi laga nr. 69/1995 og ætti því ekki rétt á bótum úr hendi stefnda, íslenska ríkisins, vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2005

S-1611/2005

Ákæruvaldið (Einar Laxness fulltrúi) gegn Sigmari Ármanni Sigurðssyni (Jón Einar Jakobsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Atvinnurekandi dæmdur í fjársekt fyrir að hafa ráðið í vinnu til sín litháískan ríkisborgara án tilskilins atvinnuleyfis.