Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 47. gr. b laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga
S, nígerískur ríkisborgari, krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem ákveðið var að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur ásamt umsókn sinni til Svíþjóðar. Var ákvörðunin reist á d-lið 1. mgr. 46. gr. a. og a-lið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Í málinu lá fyrir að Svíþjóð hafði að beiðni Útlendingastofnunar samþykkt að S yrði á grundvelli e-liðar 1. mgr. 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar fluttur aftur þangað, en S hafði áður sótt um hæli þar í landi en verið synjað. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að ekki hefði verið sýnt fram á að málsmeðferð í Svíþjóð vegna málefna hælisleitanda hefði verið haldin slíkum kerfislegum ágöllum að hún færi í bága við 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hafði ekkert komið fram í málinu um að sænsk stjórnvöld myndu ekki veita S þá vernd sem áskilin væri í alþjóðlegum skuldbindingum Svíþjóðar á sviði mannréttinda, þar á meðal reglunni um „non-refoulement“ sem öll ríki Evrópusambandsins væru bundin af, yrði S sendur aftur til Svíþjóðar. Var því talið að 45. gr. laga nr. 96/2002 stæði því ekki í vegi að íslenskum stjórnvöldum væri með vísan til 46. gr. a. laganna heimilt að synja að taka umsókn S um hæli til efnismeðferðar. Þá var jafnframt talið að skilyrði undantekningarheimildar 2. mgr. 46. gr. a. væru ekki uppfyllt í málinu, þrátt fyrir að S hefði frá því í júlí eða ágúst 2012 átt í sambandi við íslenska konu, enda hafði hann ekki sýnt fram á að aðstæður hans væru að öðru leyti svo sérstakar að ákvæðið ætti við. Loks var ekki fallist á það með S að stjórnvöld hefðu brotið gegn 9. og 10. gr. stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu S.
Felldur var úr gildi úrskurður innanríkisráðuneytisins þar sem ákveðið var að endursenda stefnanda til Svíþjóðar án þess að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði tekin til meðferðar. Einnig var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður framfærslu stefnanda.