Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 5. gr. laga nr. 92/1989 — Lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði
J var einn af 33 umsækjendum um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla hafði talið hæfasta til að gegna því embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um þá 15 umsækjendur sem skipa skyldi dómara vék ráðherra frá niðurstöðum nefndarinnar varðandi fjóra umsækjendur og var J ekki á meðal þeirra sem lagt var til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og höfðaði J í kjölfarið mál þetta á hendur Í og krafðist í fyrsta lagi ógildingar á ákvörðunum ráðherra, í öðru lagi viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í og í þriðja lagi miskabóta. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 452/2017 var úrskurður héraðsdóms um að vísa viðurkenningarkröfu J frá dómi felldur úr gildi, en niðurstaða hans um frávísun á ógildingarkröfunni staðfest. Var því einungis deilt um viðurkenningu á bótaskyldu Í og rétt J til miskabóta. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að það væri óskráð meginregla að stjórnvaldi sem skipar í opinbert starf eða embætti beri hverju sinni að velja hæfasta umsækjandann. Áður hefði sú skylda hvílt á ráðherra dómsmála að sjá til þess að þau atriði sem máli skiptu við það mat væru nægjanlega upplýst. Við gildistöku reglna um dómnefndir til að meta hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefði þeirri rannsóknarskyldu hins vegar að verulegu leyti verið létt af ráðherra og þess í stað lögð á herðar sjálfstæðrar og óháðrar dómnefndar. Samkvæmt því hefði verið lagt til grundvallar í dómaframkvæmd að ef dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um að vikið yrði frá áliti dómnefndar, væri óhjákvæmilegt að sú ákvörðun væri reist á frekari rannsókn ráðherrans eftir 10. gr. stjórnsýslulaga. Að þessu gættu taldi Hæstiréttur ljóst að dómsmálaráðherra hefði að lágmarki borið að gera samanburð á hæfni annars vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem dómnefndin hafði metið meðal 15 hæfustu en ráðherra ekki gert tillögu um og hins vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem ráðherra gerði tillögu um í þeirra stað. Gögn málsins bæru á hinn bóginn ekki með sér að slík rannsókn hefði farið fram af hálfu ráðherra. Samkvæmt því hefði málsmeðferð hans verið andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga og af því leiddi að það sama ætti við um meðferð Alþingis á tillögu ráðherra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim annmörkum sem málsmeðferð ráðherra var haldin. Með því að J hafði ekki lagt fram fullnægjandi gögn til sönnunar á því að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa var viðurkenningarkröfu hans hafnað, en hins vegar var talið að fullnægt væri skilyrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga til að dæma J miskabætur úr hendi Í og voru þær ákveðnar 700.000 krónur.
Á var einn af 33 umsækjendum um embætti dómara við Landsrétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd samkvæmt lögum um dómstóla hafði talið hæfasta til að gegna því embætti. Þegar dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um þá 15 umsækjendur sem skipa skyldi dómara vék ráðherra frá niðurstöðum nefndarinnar varðandi fjóra umsækjendur og var Á ekki á meðal þeirra sem lagt var til að yrðu skipaðir. Alþingi samþykkti tillögur ráðherra og höfðaði Á í kjölfarið mál þetta á hendur Í og krafðist í fyrsta lagi ógildingar á ákvörðunum ráðherra, í öðru lagi viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í og í þriðja lagi miskabóta. Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 451/2017 var úrskurður héraðsdóms um að vísa viðurkenningarkröfu Á frá dómi felldur úr gildi, en niðurstaða hans um frávísun á ógildingarkröfunni staðfest. Var því einungis deilt um viðurkenningu á bótaskyldu Í og rétt Á til miskabóta. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að það væri óskráð meginregla að stjórnvaldi sem skipar í opinbert starf eða embætti beri hverju sinni að velja hæfasta umsækjandann. Áður hefði sú skylda hvílt á ráðherra dómsmála að sjá til þess að þau atriði sem máli skiptu við það mat væru nægjanlega upplýst. Við gildistöku reglna um dómnefndir til að meta hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefði þeirri rannsóknarskyldu hins vegar að verulegu leyti verið létt af ráðherra og þess í stað lögð á herðar sjálfstæðrar og óháðrar dómnefndar. Samkvæmt því hefði verið lagt til grundvallar í dómaframkvæmd að ef dómsmálaráðherra gerði tillögu til Alþingis um að vikið yrði frá áliti dómnefndar, væri óhjákvæmilegt að sú ákvörðun væri reist á frekari rannsókn ráðherrans eftir 10. gr. stjórnsýslulaga. Að þessu gættu taldi Hæstiréttur ljóst að dómsmálaráðherra hefði að lágmarki borið að gera samanburð á hæfni annars vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem dómnefndin hafði metið meðal 15 hæfustu en ráðherra ekki gert tillögu um og hins vegar þeirra fjögurra umsækjenda sem ráðherra gerði tillögu um í þeirra stað. Gögn málsins bæru á hinn bóginn ekki með sér að slík rannsókn hefði farið fram af hálfu ráðherra. Samkvæmt því hefði málsmeðferð hans verið andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga og af því leiddi að það sama ætti við um meðferð Alþingis á tillögu ráðherra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim annmörkum sem málsmeðferð ráðherra var haldin. Með því að Á hafði ekki lagt fram fullnægjandi gögn til sönnunar á því að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa var viðurkenningarkröfu hans hafnað, en hins vegar var talið að fullnægt væri skilyrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga til að dæma Á miskabætur úr hendi Í og voru þær ákveðnar 700.000 krónur.
G höfðaði mál gegn Í og Á í kjölfar þess að G hlaut ekki skipun í embætti héraðsdómara. Í umsögn dómnefndar samkvæmt 12. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla kom fram að G og tveir aðrir umsækjendur hefðu staðið öðrum framar og verið mjög vel hæfir til að gegna embættinu. Á, sem þá var settur dóms- og kirkjumálaráðherra, skipaði aftur á móti umsækjanda sem nefndin taldi að stæði framangreindum umsækjendum að baki þrátt fyrir að sá teldist hæfur til að gegna embætti héraðsdómara. Í dómi Hæstaréttar var rakið að með lögum nr. 15/1998, eins og þau voru þá úr garði gerð, hefði rannsóknarskyldu stjórnsýslulaga í verulegum atriðum verið létt af dóms- og kirkjumálaráðherra við skipun í embætti héraðsdómara, en hún þess í stað lögð á herðar dómnefndar, sem skipuð væri með tilliti til þess að tryggt yrði að sérþekking væri þar fyrir hendi um mat á hæfni umsækjenda. Hefði ráðherra talið efni til að víkja frá áliti dómnefndarinnar hefði verið óhjákvæmilegt að ákvörðun hans yrði reist á frekari rannsókn, þar sem meðal annars yrði tekið tillit til fyrirmæla hans sjálfs í reglum um störf dómnefndarinnar um það atriði varðandi umsækjendur sem ráða skyldu hæfnismati, og tryggt að sérþekkingar nyti þar við í sambærilegum mæli og við störf dómnefndarinnar. Ekkert þótti fram komið um frekari rannsókn Á sjálfs eða annarra á hans vegum á atriðum sem vörðuðu veitingu embættisins. Á hefði mátt vera kunnugt að rannsókn hans hefði verið með öllu ófullnægjandi til að upplýsa málið nægilega svo að honum gæti verið fært að taka aðra ákvörðun um hæfni umsækjenda en dómnefnd, sem skipuð var sérfróðum mönnum. Var þetta metið honum til sakar. Þar sem ekkert lá fyrir um að G hefði staðið nær en aðrir umsækjendur sem taldir voru hæfastir til að hljóta embættið voru Í og Á sýknuð af kröfu G um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna fjártjóns hans. Þrátt fyrir að Á hefði ekki látið orð falla til að vega að persónu eða æru G taldi Hæstiréttur að ekki yrði litið fram hjá því að Á mátti vera ljóst að gerðir hans gætu að ófyrirsynju bitnað á orðspori G og orðið honum þannig að meini. Þrátt fyrir þetta hefði hann gengið fram án þess að skeyta nokkuð um þessa augljósu hættu. Skilyrðum b. liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 var því talið fullnægt og breytti engu að G hefði ekki átt lögvarinn rétt á að hljóta embættið. Þar sem ekki var talið að ákvæði laga girtu fyrir að ráðherra gæti orðið skaðabótaskyldur eftir almennum reglum vegna stjórnsýsluákvörðunar sinnar voru Í og Á í sameiningu dæmd til að greiða G miskabætur.
Stefndu, ísl. ríkinu og Árna Mathiesen, var gert að greiða stefnanda óskipt miskabætur að fjárhæð 3.500.000 kr., en stefndu voru sýknaðir af kröfu stefnanda um skaðabótaskyldu vegna embættisveitingarinnar. Mál þetta var tilkomið vegna skipunar í dómaraembætti við Héraðsdóm Norðurlands Eystri.
K sótti um embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli ásamt sex körlum en utanríkisráðherra skipaði einn þeirra, J, í embættið. Krafðist K þess að viðurkennt yrði að skipunin hefði brotið gegn lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Tekið var fram að við úrlausn málsins yrði að meta hvort ráðherra hefði reist ákvörðun sína á lögmætum sjónarmiðum. Var talið að auglýsing um embætti sýslumannsins hefði veitt ákveðna forsögn um það hvernig umsóknirnar yrðu metnar en þar var að finna lýsingu á meginverkefnum sýslumanns er brá ljósi á sérstætt eðli embættisins vegna staðsetningar þess á varnarsvæðinu og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um landamæraeftirlit. Var með þessu talið vera gefið til kynna að önnur reynsla og þekking en af hefðbundnum störfum sýslumanna, svo sem starfsreynsla á erlendum vettvangi, myndi geta haft töluvert vægi við mat umsókna. Þótti auglýsingin hafa verið eðlilega úr garði gerð enda ekki falið í sér ólögmæt hæfisskilyrði en við veitingu embættisins hefði ekki verið byggt á öðrum atriðum en ráða mátti af henni. Var fallist á að Í hefði fært fram gild rök um sérstöðu embættisins sem hlaut að skipta miklu máli við val milli umsækjenda. Drjúg reynsla J í alþjóðasamskiptum af ýmsum toga var talin til þess falin að treysta hæfni hans til að takast á við meginviðfangsefni embættisins. Þegar allt var virt var talið réttmætt að starfsreynsla hans hefði vegið þyngra en K við hæfnismat. Þá var K ekki talin hafa sýnt fram á að menntun hennar og starfsreynsla hefðu nýst henni þannig að hún yrði talin hafa verið J jafnhæf eða hæfari til að gegna starfinu. Voru sjónarmið utanríkisráherra við veitingu embættisins því talin eðlileg og málefnaleg og ekki fallist á að K hefði verið mismunað eftir kynferði. Var Í því sýknað af kröfum K.