Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 16. gr. c laga nr. 87/1992 — Lög um gjaldeyrismál
Í málinu deildu aðilar um gildi og efni ákvörðunar S um að leggja á P ehf. stjórnvaldssekt að tiltekinni fjárhæð vegna nánar tilgreindra brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þá var deilt um skyldu Í til endurgreiðslu sektarinnar með dráttarvöxtum ef fallist yrði á aðalkröfu P ehf. um ógildingu ákvörðunarinnar eða varakröfu um lækkun sektarinnar. Óumdeilt var að erlent móðurfélag P ehf., N, hafði keypt réttindi samkvæmt nauðasamningi K ehf. og framselt réttindin með lánssamningi til P ehf. en félögin heyrðu til sömu samstæðu í skilningi 1. mgr. 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að lánssamningur P ehf. við N hefði falið það í sér að hluta- og kröfuréttindi voru flutt frá N til P ehf. Talið var að samningurinn hefði falið í sér fjármagnshreyfingar milli landa sem hefðu farið í bága við 13. gr. b. og 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í ljósi þeirra undaþága sem giltu um fjármagnshreyfingar innan samstæðu milli landa samkvæmt lögum nr. 87/1992 var talið að S hefði ekki fært fyrir því rök að brot P ehf. hefðu verið til þess fallin að valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum, svo sem byggt var á í ákvörðun S. Væri þá einnig horft til þess að S hefði látið það viðgangast átölulaust að greiðslur af hálfu K ehf. væru inntar af hendi til annars fyrirtækis í sambærilegri stöðu. Þá voru brot P ehf. ekki talin ítrekuð í skilningi 2. mgr. 15. gr. laganna. Enn fremur var talið að við mat á fjárhæð sektar bæri að líta bæði til þess vafa sem var uppi um skýringu laga nr. 87/1992 svo og viðbragða S við tilkynningum K ehf. og fyrirætlun um að inna af hendi greiðslur til annars tiltekins fyrirtækis. Þótt ekki færi á milli mála að P ehf. hefði leitast við að nýta sér undanþágur í lögum um gjaldeyrismál í því skyni að fá greiddar út kröfur samkvæmt nauðasamningi K ehf., í stað þess að þeim væri ráðstafað á reikning í vörslu S, var talið að ekki hefðu verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brot P ehf. hefðu verið sérlega alvarleg með tilliti til markmiða laga um gjaldeyrismál og því ekki efni til að gera P ehf. sérstaka sekt vegna brota sinna. Var sekt P ehf. því felld niður og Í gert að endurgreiða sektarfjárhæðina ásamt dráttarvöxtum.
Í málinu deildu aðilar um gildi og efni ákvörðunar S um að leggja á R ehf. stjórnvaldssekt að tiltekinni fjárhæð vegna nánar tilgreindra brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þá var deilt um skyldu Í til að endurgreiða sektarfjárhæðina með dráttarvöxtum ef fallist yrði á aðalkröfu R ehf. um ógildingu ákvörðunarinnar eða varakröfu um lækkun sektarinnar. Óumdeilt var að erlent móðurfélag R ehf., B, hafði keypt réttindi samkvæmt nauðasamningi K ehf. og framselt réttindin með lánssamningum til R ehf. en félögin heyrðu til sömu samstæðu í skilningi 1. mgr. 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom meðal annars fram að lánssamningar R ehf. við B hefðu falið það í sér að hluta- og kröfuréttindi hefðu verið flutt frá B til R ehf. Talið var að samningarnir hefðu falið í sér fjármagnshreyfingar milli landa sem hefðu farið í bága við 13. gr. b. og 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í ljósi þeirra undaþága sem giltu um fjármagnshreyfingar innan samstæðu milli landa samkvæmt lögum nr. 87/1992 var talið að S hefði ekki fært fyrir því rök að brot R ehf. hefðu verið til þess fallin að valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum, svo sem byggt var á í ákvörðun S. Væri þá einnig horft til þess að S hefði látið það viðgangast átölulaust að greiðslur af hálfu K ehf. væru inntar af hendi til R ehf. Þá voru brot R ehf. ekki talin ítrekuð í skilningi 2. mgr. 15. gr. laganna. Enn fremur var talið að við mat á fjárhæð sektar bæri að líta bæði til þess vafa sem var uppi um skýringu laga nr. 87/1992 svo og viðbragða S við tilkynningum K ehf. og fyrirætlun um að inna af hendi greiðslur til R ehf. Þótt ekki færi á milli mála að R ehf. hefði leitast við að nýta sér undanþágur í lögum um gjaldeyrismál í því skyni að fá greiddar út kröfur samkvæmt nauðasamningi K ehf., í stað þess að þeim væri ráðstafað á reikning í vörslu S, var talið að ekki hefðu verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brot R ehf. hefðu verið sérlega alvarleg með tilliti til markmiða laga um gjaldeyrismál og því ekki efni til að gera R ehf. sérstaka sekt vegna brota sinna. Var sekt R ehf. því felld niður og Í gert að endurgreiða sektarfjárhæðina ásamt dráttarvöxtum.
aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er Rask ehf., Lágmúla 7, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn
stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda 75 milljóna króna stjórnvaldssekt, en til vara, að, ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði lækkuð, stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að honum og verði gert að greiða stefnanda 78.160.034 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1
Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið R vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.