Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 45. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
S stóð fyrir útboði á sorphirðu í sveitarfélaginu fyrir árin 2012 til 2016 og skiluðu tveir bjóðendur tilboði í verkið. S ákvað að hafna báðum boðunum sökum annmarka á útboðinu sem það taldi til þess fallna að raska jafnræði bjóðenda. G hf. krafði S um skaðabætur þar sem það taldi að S hefði verið skylt að gera verksamning við það í kjölfar útboðsins. Á miðju ári 2017 framseldi G hf. kröfur sínar til E ehf. og tók E ehf. við aðild G hf. að málinu. Kröfugerð E ehf. tók til ætlaðs missis hagnaðar G hf. á árinu 2012 en við úrlausn málsins í héraði lágu fyrir matsgerð og yfirmatsgerð. Í hinum áfrýjaða dómi var meðal annars talið að E ehf. hefði sýnt fram á saknæma háttsemi S við höfnun beggja tilboðanna og að ef ekki hefði komið til hennar, þá hefði verið gengið til samninga við G hf. Á hinn bóginn taldi héraðsdómur að undirmatsgerð gæfi ekki rétta mynd af umfangi verksins og að úr þeim ágöllum hefði ekki verið bætt í yfirmatsgerð. Því var S sýknað af skaðabótakröfu E ehf. Undir rekstri málsins fyrir Landsrétti fékk E ehf. yfirmatsmennina dómkvadda að nýju til viðbótarmats og leitaðist þannig við að bæta úr þeim annmörkum sem héraðsdómur taldi vera á yfirmatsgerðinni. Með dómi Landsréttar var hafnað kröfu S um ómerkingu hins áfrýjaða dóms og vísað til þess að héraðsdómur hefði tekið efnislega afstöðu til málsástæðna aðila hvað varðaði sönnun á meintu tjóni G hf. og komist að niðurstöðu sem ekki væri tilefni til að ómerkja. Þá taldi rétturinn að ekki hefðu verið efnisleg skilyrði samkvæmt þágildandi lögum um opinber innkaup nr. 84/2007 til að hafna tilboðum í verkið og að ákvörðun S þar um hefði af þeirri ástæðu verið ólögmæt, en einnig sökum vanhæfis eins af bæjarstjórnarmönnum S við ákvörðunina, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því var fallist á það með héraðsdómi að ef ekki hefði komið til réttarbrots S hefði verið samið við G hf. og jafnframt að skilyrðum 2. mgr. 101. gr. laga nr. 84/2007 til greiðslu skaðabóta væri fullnægt. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að þær matsgerðir sem lagðar hefðu verið fram í málinu yrðu á hinn bóginn ekki alfarið lagðar til grundvallar niðurstöðu um umfang tjóns G hf. Þrátt fyrir annmarka á matsgerðunum þættu þær leiða fullnægjandi líkum að því að tekjur G hf. af verkinu hefðu orðið mun hærri en kostnaður hans af því og G hf. því orðið af talsverðri framlegð vegna bótaskyldrar háttsemi S. Því þótti nægilegur grundvöllur til að dæma E ehf. bætur að álitum úr hendi S sem ákveðnar voru 11.398.875 krónur að teknu tilliti til fjárhæðar sem S hafði þegar greitt G hf. vegna kostnaðar af þátttöku í útboðinu.
S stóð fyrir útboði á sorphirðu í sveitarfélaginu fyrir árin 2012 til 2016 og skiluðu tveir bjóðendur tilboði í verkið. S ákvað að hafna báðum boðunum sökum annmarka á útboðinu sem það taldi til þess fallna að raska jafnræði bjóðenda. G hf. krafði S um skaðabætur þar sem það taldi að S hefði verið skylt að gera verksamning við það í kjölfar útboðsins. Á miðju ári 2017 framseldi G hf. kröfur sínar til E ehf. og tók E ehf. við aðild G hf. að málinu. Dómkrafa E ehf. tók til ætlaðs missis hagnaðar G hf. vegna áranna 2013 til 2016 en við úrlausn málsins í héraði lágu fyrir matsgerð og yfirmatsgerð. Héraðsdómur sýknaði S á þeim grunni að krafa G hf. hefði þegar verið fyrnd við málshöfðun en fjallaði í kjölfarið jafnframt um aðrar málsálstæður S fyrir sýknu. Í dómi Landsréttar var hafnað kröfu S um ómerkingu héraðsdóms og skírskotað til þess að enda þótt jafnframt hefði verið tekin afstaða til annarra málsástæðna en fyrningar gæti umfjöllun um þær og afstaða til þeirra ekki leitt til ómerkingar dómsins, enda hefði héraðsdómur áður fjallað um málsástæður er lytu að fyrningu og komist að þeirri niðurstöðu að allar kröfur E ehf. væru fyrndar. Þá vísaði Landsréttur meðal annars til þess að í málinu lægi fyrir að S hefði 16. desember 2011 sent G hf. tilkynningu án rökstuðnings um að hafna öllum tilboðum í umrætt verk og 19. sama mánaðar sent G hf. rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun. Fyrningarfrestur skaðabótakrafna byrjaði samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu að líða á þeim degi þegar tjónþoli fengi nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ábyrgð bæri á því eða bæri að afla sér slíkra upplýsinga. Ákvæðið yrði ekki skilið þannig að upphaf fyrningarfrests miðaðist við það tímamark þegar endanlega væri unnt að meta umfang tjónsins en fyrningarfrestum væri meðal annars ætlað að gefa tjónþola hæfilegt svigrúm til þess að staðreyna umfang tjóns. Þegar G hf. hefði borist tilkynning um að S hefði hafnað tilboði félagsins og rökstuðningur fyrir þeirri ákvörðun hefði félagið þegar haft undir höndum nægar upplýsingar um þær tekjur sem ætla mátti að það færi á mis við á samningstímanum. Jafnframt yrði að ætla að félagið hefði þá einnig haft undir höndum nægilega nákvæmar upplýsingar og útreikninga á væntanlegum kostnaði við verkið og þar með hafi stjórnendur þess getað áttað sig á að félagið hefði orðið fyrir tjóni vegna tapaðrar framlegðar á samningstímanum. Ekki þætti ástæða til að miða við að fyrningarfrestur hefði ekki hafist fyrr en eftir lok fyrirhugaðs samningstíma og var því fallist á með héraðsdómi að allar kröfur G hf. á hendur S hefðu verið fallnar niður fyrir fyrningu þegar málið var höfðað 28. febrúar 2017. Þegar af þeirri ástæðu var niðurstaða héraðsdóms um sýknu staðfest.
Stefnda talið hafa brotið gegn lögum um opinber innkaup við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu síðari hluta ársins 2011. Var krafa stefnanda talin fyrnd. Auk þess var stefnandi ekki talinn hafa fært sönnur fyrir ætluðu tjóni sínu og var stefnda sýknað af af skaðabótakröfu stefnanda.
Stefnda talið hafa brotið gegn lögum um opinber innkaup við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu síðari hluta ársins 2011. Hins vegar var stefnandi ekki talinn hafa fært sönnur fyrir ætluðu tjóni sínu og var stefnda sýknað af af skaðabótakröfu stefnanda.
S stóð fyrir útboði á sorphirðu í sveitarfélaginu og skiluðu tveir bjóðendur tilboði í verkið. S ákvað að hafna báðum tilboðum sökum annmarka á útboðinu sem það taldi til þess fallna að raska jafnræði bjóðenda. G hf. krafðist skaðabóta þar sem hann taldi að S hefði verið skylt að gera við hann verksamning í kjölfar útboðsins. Var í hinum áfrýjaða dómi talið að S hefði með ákvörðun sinni brotið gegn ákvæðum laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og að G hf. hefði leitt að því nægjum líkum að það hefði orðið fyrir tjóni samkvæmt 2. mgr. 101. gr. laga þeirra laga, en í málinu lágu fyrir matsgerð og yfirmatsgerð. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að telja yrði að héraðsdómara hafi verið ófært að fjalla nægilega um ágreiningsatriði málsins á grunni almennrar þekkingar sinnar, menntunar eða lagaþekkingar, og hefði verið þörf á sérkunnáttu til að leysa úr málinu. Hefði því verið nauðsynlegt að héraðsdómari kveddi til sérfróða meðdómsmenn til að leggja mat á gögn málsins og spyrja þá sérfróðu menn sem unnið hefðu matsgerðir í því, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þar sem það hefði ekki verið gert var héraðsdómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til aðalmeðferðar og dómsálagningar að nýju.
Ákvörðun stefnda um að hafna öllum tilboðum í útboði talin ólögmæt og stefnda dæmt til að greiða stefnanda skaðabætur.
Stefndi sýkn af kröfum stefnanda um tjón á grundvelli sjónarmiða um missi hagnaðar.