Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 4. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup

Landsréttur birt 24. mars 2023

686/2021

Drífa ehf (Andri Árnason lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

D ehf. höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu I ohf. vegna hagnaðarmissis sem leiddi af ákvörðun I ohf. um að semja ekki við D ehf. um verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í kjölfar útboðs sem D ehf. tók þátt í árið 2014. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á með D ehf. að I ohf. hefði borið að fylgja stjórnsýslulögum eða öðrum almennum reglum stjórnsýsluréttar við forvalið og útleigu verslunarrýmis í flugstöðinni. Þá var hvorki fallist á að þágildandi lög nr. 84/2007 um opinber innkaup né lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða hefðu gilt um útboð I ohf. Jafnframt væri ósannað að I ohf. eða nefndarmenn í matsnefnd um útboðið hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi við mat og meðferð á tilboði D ehf. Yrði ekki annað ráðið af gögnum málsins en að vandað hefði verið til forvalsins, forsendur þess hefðu legið ljósar fyrir í útboðsgögnum, jafnræðis verið gætt og að lögmæt og málefnaleg sjónarmið hafi ráðið för við mat á tilboði D ehf. Við það mat yrði einnig að hafa í huga tilgang I ohf., sem væri að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugstöðvarinnar, og að I væri sem rekstraraðila hennar heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná þeim tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt. Yrði því að játa I ohf. ákveðið svigrúm við mat á því hvaða tilboð og viðskiptahugmyndir féllu best að tilgangi félagsins þannig að markmiðum þess um þjónustu við farþega og hagnað fyrir rekstur flugstöðvarinnar yrði sem best náð. Skilyrði almennu skaðabótareglunnar um saknæma og ólögmæta háttsemi væru því ekki uppfyllt í málinu og var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna I ohf. af kröfum D ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. október 2021

E-4962/2014

Drífa ehf (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Sýknað af kröfu um viðurkenningu bótaábyrgðar vegna forvals vegna verslunarreksturs í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Landsréttur birt 16. nóvember 2018

205/2018

Laugar ehf (Geir Gestsson lögmaður) gegn Kópavogsbæ (Guðjón Ármannsson lögmaður)

K auglýsti á árinu 2014 eftir tilboðum í leigu á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogsbæ. L gerði tilboð ásamt B ehf. Tilboð þess síðarnefnda var metið ógilt vegna annmarka á formi en tilboði L var hafnað þar sem það uppfyllti ekki kröfur í útboðslýsingu. L ehf. höfðaði mál á hendur K og krafðist skaðabóta vegna ákvörðunar K um að hafna tilboði L ehf. Landsréttur taldi að ákvörðun K um að hafna tilboði L ehf. hefði ekki verið stjórnvaldsákvörðun, heldur ákvörðun einkaréttarlegs eðlis. Lagt var til grundvallar að innkaupareglur K hefðu átt við um útboðið. Í ljósi þess að 17. gr. innkaupareglnanna gerði almennt ráð fyrir því að ekki yrði samið við bjóðanda sem væri með neikvætt eigið fé og að K hafði metið það svo að útskýringar L ehf. á eiginfjárstöðu hefðu ekki verið fullnægjandi yrði að leggja til grundvallar að ákvörðun K um að hafna tilboði L ehf. hefði verið byggð á málefnalegum forsendum. Var K sýknaður af kröfum L ehf.