Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 30. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup

Hæstiréttur birt 20. mars 2014

639/2013

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (Óskar Sigurðsson hrl, Auður Björg Jónsdóttir hdl) gegn Bílum (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) og fólki ehf (Bjarki Þór Sveinsson hdl)

S auglýsti útboð vegna aksturs almenningsvagna innan starfsvæðis síns og milli þess og höfuðborgarsvæðisins. B ehf. var meðal þeirra sem bauð í aksturinn og átti félagið lægsta tilboð í útboðinu sem fólst í boði í fyrsta og annan verkhluta þess sameiginlega, en að auki hafði B ehf. boðið í hvorn verkhluta fyrir sig. Aðilar málsins deildu annars vegar um það hvort hið sameiginlega tilboð B ehf. í fyrst og annan verkhluta hefði verið ógilt og hins vegar hvaða kosti S átti þegar fyrir lá að B ehf. hygðist ekki standa við lægsta tilboð sitt í útboðinu. Hæstiréttur taldi að B ehf. hefði hvorki sýnt fram á að lægsta tilboð hans í útboðinu hefði vegna misritunar eða annarra mistaka orðið annars efnis en til hefði verið ætlast þannig að óskuldbindandi væri fyrir félagið samkvæmt 1. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1936 né að tilboðið hefði verið óeðlilega lágt í skilningi 73. gr. laga nr. 84/2007. Hefði lægsta tilboð B ehf. í útboðinu því verið gilt og skuldbindandi fyrir félagið. Með tilkynningu sem send var um að tilboðið væri endanlega samþykkt hefði komist á bindandi samningur milli aðila á grundvelli útboðsgagna og lægsta tilboðs B ehf. Þegar ljóst hefði verið að B ehf. hugðist ekki standa við tilboðið hefði S verið heimilt samkvæmt almennum reglum kröfuréttar um fyrirsjáanlegar vanefndir að lýsa þá þegar yfir riftun samningsins, enda hefði vanefnd B ehf. verið veruleg. Var því fallist á með héraðsdómi að hefði B ehf. beðið tjón í skiptum sínum við S vegna þessa yrðu ástæður þess að öllu leyti raktar til háttsemi hans sjálfs en ekki til S. Var S því sýknað af kröfu B ehf. um skaðabætur. Á hinn bóginn vísaði Hæstiréttur til þess að S hefði ekki verið rétt að ganga til samningskaupa við annan aðila án þess að fram færi almennt eða lokað útboð á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem ekki hefði verið fullnægt skilyrðum c. liðar 33. gr. laga nr. 84/2007. Hefði S átt þess kost að láta fara fram hraðútboð á grundvelli 60. gr. laganna, enda hefði verið fullnægt því skilyrði að fyrir hendi hefðu verið aðstæður sem honum yrði ekki um kennt. Þótt val á þeirri leið hefði að líkindum leitt til þess að akstur samkvæmt nýju útboði hefði ekki getað hafist á þeim degi sem til stóð, og S því þurft að semja tímabundið við annan um þann akstur, væru líkur til að S hefði með þeim hætti getað takmarkað tjón sitt frekar en reyndin varð. Þar sem valin hefði verið leið sem ekki hefði verið fær samkvæmt lögum nr. 84/2007 yrði hann að taka afleiðingum þess og bera sjálfur það tjón sem af kynni að hafa hlotist. Var B ehf. því sýknað af kröfu S.

Héraðsdómur Suðurlands birt 5. júlí 2013

E-2/2013

málinu nr. E-2/2013 Bílar og fólk ehf (Bjarki Þór Sveinsson hdl) gegn Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (Teitur Már Sveinsson hdl)
Lykilorð: Skaðabætur. Sönnun. Tilboð.

Útboð á almenningssamgöngum: Í aðalsök var deilt um gildi tilboðs og var stefndi, verkkaupi, sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda, bjóðanda. Í gagnsök var stefndi, bjóðandi, sýknaður af skaðabótakörfu stefnanda, verkkaupa, innan samninga.

Hæstiréttur birt 2. desember 2010

714/2009

Fálkinn hf (Othar Örn Petersen hrl, Hjördís Halldórsdóttir hdl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Eiríkur Elís Þorláksson hrl, Arnar Þór Stefánsson hdl)

O óskaði eftir tilboðum í miðlægar skólphreinsistöðvar sem félagið hugðist reisa ásamt tilheyrandi dælubrunnum. Í útboðslýsingunni kom meðal annars fram að um opið EES útboð væri að ræða og um það giltu lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða. Alls bárust fjögur tilboð í verkið, þar af þrjú frá F og eitt frá V. Tvö tilboðanna frá F voru frávikstilboð og annað þeirra var hið lægsta þeirra tilboða sem bárust. Næstlægsta tilboðið átti V. Öll tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun O og ákvað félagið að hafna þeim öllum, en gekk síðar til samninga við V. F krafði O um greiðslu skaðabóta og í málinu var einkum deilt um þá málsástæðu F að samkvæmt 30. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup hafi O verið skylt að bjóða kaupin út að nýju í stað þess að semja við V. O taldi að sér hafi verið óskylt að efna til útboðsins og verið heimilt að semja við V eftir að hafa hafnað öllum tilboðum, enda hafi lög nr. 84/2007 ekki tekið til útboðsins, að undanskildum reglum í XIV. og XV. kafla þeirra um kærunefnd útboðsmála og fleira. Í dómi Hæstaréttar er vísað í athugasemdir með frumvarpi sem varð að lögum nr. 84/2007 þar sem meðal annars hafi sérstaklega verið fjallað um tilefni þess að frumvarp til nýrra laga um opinber innkaup hafi verið flutt. Þar kæmi meðal annars fram að breytingarnar sem frumvarpið fæli í sér kæmu fyrst og fremst til af breytingum á reglum EES-samningsins, annars vegar um svonefnda útboðstilskipun nr. 2004/18/EB og hins vegar um svonefnda veitutilskipun nr. 2004/17/EB. Í síðari tilskipuninni væri fjallað um samræmingu reglna um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Samkvæmt 12. gr. útboðstilskipunarinnar væru þessir aðilar, sem heyra undir veitutilskipunina, undanþegnir útboðsskyldu og í málinu væri hafið yfir vafa að O og sú starfsemi sem um væri deilt félli undir hina síðarnefndu tilskipun. Samkvæmt þessu væri í 7. gr. laga nr. 84/2007 í þremur málsgreinum fjallað um samninga þessara aðila og þar tilgreint hvaða reglur giltu fyrir þá. Vísað var í athugasemdir með frumvarpinu og samkvæmt yfirlýstum tilgangi þar væri ljóst að samningum eins og um ræddi í málinu væri ætlað að falla utan meginreglu um útboðsskyldu opinberra aðila samkvæmt 30. gr. laga nr. 84/2007. Samanburður á orðalagi í 1. og 3. mgr. ákvæðisins og yfirlýstum tilgangi með innleiðingu tilskipunar nr. 2004/17/EB gæfi á hinn bóginn til kynna að draga mætti í efa að lögin væru að þessu leyti í samræmi við tilganginn, og orðalaginu stefnt í gagnstæða átt við yfirlýstan tilgang þeirra. Það var því talið að við þessar aðstæður yrði ekki hjá því komist að líta svo á að 1. mgr. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 84/2007 gætu ekki komið til frekari athugunar við úrlausn málsins. Niðurstaðan réðist því af 2. mgr. sömu greinar og samkvæmt henni ætti einungis XIV. og XV. kafli laganna við um þá starfsemi O sem greindi í útboðinu. Málsástæðu F sem laut að því að O hafi verið skylt að bjóða verkið út samkvæmt ákvæði 30. gr. laga nr. 84/2007 var því hafnað. Kröfur F um skaðabætur var jafnframt hafnað með vísan til 13. og 12. gr. laga nr. 65/1993. Var O því sýknað af kröfum F í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. september 2009

E-7966/2008

málinu nr. E-7966/2008 Fálkinn hf (Sigurður Júlíusson hdl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Arnar Þór Stefánsson hdl)
Lykilorð: Skaðabætur. Tilboð.

Stefndi efndi til útboðs í maí 2007 vegna áforma um að reisa fjórar miðlægar skólphreinsistöðvar í Borgarfirði. Stefnandi var meðal bjóðenda og var frávikstilboð hans lægst, en vafi lék á um gildi tilboðsins. Stefndi hafnaði öllum tilboðum og gekk síðar til samninga við einn bjóðenda. Stefnandi krafðist skaðabóta og taldi að stefnda hefði borið að bjóða út innkaupin að nýju. Talið var að lög um opinber innkaup nr. 84/2007 hefðu ekki gilt um innkaup stefnda á þeim tím er útboð fór fram, og var stefndi sýknaður af öllum kröfum stefnanda.