Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 30. gr. laga nr. 81/2003 — Lög um fjarskipti

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

919/2018

Sýn hf (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Dóra Sif Tynes lögmaður, 1. prófmál) gegn Símanum hf (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

Með ákvörðun 3. apríl 2012 í máli nr. 7/2012 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að SM hefði brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 54. gr. EES-samningsins með verðþrýstingi á farsímamarkaði frá 1. maí 2001 til ársloka 2007. Í ákvörðuninni var borið saman smásöluverð SM í innankerfissímtölum og gjald sem hann innheimti af keppinautum sínum fyrir lúkningu símtala sem hófust í símkerfum keppinauta en enduðu í farsímakerfi hans. Með úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála 22. ágúst 2012 í máli nr. 1/2012 var ákvörðun Samkeppniseftirlitsins staðfest um framangreind atriði. SN höfðaði mál á hendur SM til greiðslu skaðabóta fyrir tjón sem hefði hlotist af þeim ólögmæta verðþrýstingi sem lýst var í framangreindum úrlausnum. SM höfðaði gagnsök á hendur SN og byggði á því að ef fallist yrði á málatilbúnað SN ætti SM kröfu á hendur honum á nákvæmlega sama grunni. SN taldi að tjón hans næmi muninum á þeim lúkningargjöldum sem hann greiddi SM og 75% af smásöluverði SM í innankerfissímtölum. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að SN hefði að takmörkuðu leyti rökstutt hvernig framangreind aðferð endurspeglaði rauntjón hans af háttsemi SM. Dómkvaddir matsmenn hefðu tekið fram að aðferðin ein og sér væri ekki heppileg til að meta sjálft tapið af samkeppnislagabrotum. Með aðferðinni væri einungis horft til verðmismunar miðað við tiltekna og fasta hlutfallslækkun á smásöluverði allt tímabilið án þess að horft væri til annarra atriða. Var talið að sú matsgerð dómkvaddra manna sem SN aflaði þar sem ofgreiðsla hans var reiknuð samkvæmt framangreindri aðferð og sem SN reisti aðalkröfu sína á, yrði ekki talin færa sönnur á tjón SN. Þá var ekkert haldbært talið liggja fyrir í málinu sem unnt væri að reisa ákvörðun um bætur að álitum á. Landsréttur tók fram að aðalkrafa SM í gagnsök væri reist á sömu aðferðafræði og krafa SN í aðalsök og byggði á svari dómkvaddra matsmanna við samskonar spurningu og SN lagði fyrir þá. Var talið að það svar sannaði ekki að SM hefði orðið fyrir tjóni vegna þeirrar háttsemi SN sem hann taldi hafa brotið gegn samkeppnislögum. Þá var ekki talið að möguleiki væri á því að ákvarða bætur að álitum. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu aðila af kröfum hvors annars.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2018

E-4525/2013

Sýn hf (Dóra Sif Tynes lögmaður) gegn Símanum hf (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

Gagnstefnandi var sýknaður af kröfum aðalstefnanda í aðalsök málsins þar sem að ekki þótti vera sýnt fram á það af hálfu aðalstefnanda að eiginlegt tjón hans væri sannað m.t.t. úrræða hans til að takmarka tjón sitt þótt fallist væri á það að bótagrundvöllur væri fyrir hendi. Þá var aðalstefnandi sýknaður af dómkröfum gagnstefnanda í gagnsök málsins þar sem ekki var talið að sýnt væri fram á það af gagnstefnanda að bótagrundvöllur væri yfirleitt fyrir hendi hvað þær varðaði. Varð niðurstaðan því sú að málsaðilar voru sýknaðir af kröfum hvors annars.