Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 18. gr. laga nr. 8/1993 — Samkeppnislög

Hæstiréttur birt 6. desember 2012

218/2012

Síminn hf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Með ákvörðun S árið 2005 voru samruna S hf. og Í hf. sett nánar tiltekin skilyrði, á grundvelli 1. mgr. 18. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, sem S hf. bar að fylgja í rekstri sínum að viðlögðum stjórnvaldssektum. Í málinu deildu S og S hf. um það hvort hið síðarnefnda félag hefði brotið gegn tveimur töluliðum ákvörðunarinnar, en S og áfrýjunarnefnd samkeppnismála töldu að svo hefði verið. Talið var að S hf. hefði brotið gegn skilyrði 5. tölul. ákvörðunarinnar, þar sem mælt var fyrir um að S hf. væri óheimilt að gera það að skilyrði fyrir kaupum á þjónustu félagsins að þjónusta Í hf. skyldi fylgja með í kaupunum og að S hf. væri óheimilt að tvinna saman í sölu þjónustu sína og þjónustu Í hf. Á hinn bóginn var talið að skilyrði 7. tölul. ákvörðunarinnar væru hvorki ákveðin né skýr og að S yrði að bera hallann af því. Samkvæmt því var S hf. ekki talið hafa brotið gegn því skilyrði. Var stjórnvaldssekt S hf. ákveðin 50.000.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2012

E-6395/2010

Síminn hf (Halldór Brynjar Halldórsson hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Stefndi, Samkeppniseftirlitið, var sýknaður af kröfu stefnanda, Símans hf., um ógildingu sektarákvörðunar áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna brota sem stefndi taldi stefnanda hafa gerst sekan um á 5. og 7. töluliðum í skilyrðum samkeppnisráðs fyrir samruna stefnanda og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. Sektin var hins vegar lækkuð þar sem dómurinn taldi ekki liggja fyrir að stefnandi hefði gerst brotlegur við 7. tölulið skilyrðanna.