Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 45. gr. laga nr. 8/1986 — Sveitarstjórnarlög

Hæstiréttur birt 2. mars 2000

360/1999

Hrefna Markan Harðardóttir (Einar Gautur Steingrímsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Sigrún Guðmundsdóttir hrl) og Biskupstungnahreppi (Sigurður Jónsson hrl)

Sex kennarar, þar á meðal H, sóttu um kennarastöðu við skólann R í hreppnum B fyrir skólaárið 1994-1995. Voru fjórir af sex umsækjendum ráðnir, en H var ekki ein af þeim. Mæltu skólastjóri og skólanefnd ekki með umsókn hennar og féllst fræðslustjóri á álit þeirra. Á sama tíma sótti skólastjóri um heimild undanþágunefndar grunnskóla til að ráða M sem leiðbeinanda að skólanum. Í bréfi skólastjóra R til H, frá september 1994, var henni tjáð að ekki hefði verið mælt með umsókn hennar. Einnig kom þar fram að forsendur fyrir ráðningu kennara hefðu breyst frá því sem áætlað hefði verið og hefðu fastráðnir kennarar aukið við sig kennslu. Í trúnaðarbréfi frá sama tíma til undanþágunefndar grunnskóla greindu skólastjóri og formaður skólanefndar R hins vegar frá því að H væri ekki talin heppilegur starfskraftur fyrir skólann og ekki líkleg til að uppfylla kröfur sem gerðar væru til umræddrar kennarastöðu. Áður en undanþágunefndin hafði tekið umsóknina varðandi M til formlegrar afgreiðslu var hún afturkölluð. Var M síðar ráðinn af B, sem stuðningsfulltrúi við R, og tók hann um veturinn einnig við nokkurri forfallakennslu. Höfðaði M mál á hendur ríkinu og hreppnum B til heimtu bóta. Kvaðst H ekki hafa verið kunnugt um efni bréfsins til undanþágunefndarinnar fyrr en á árinu 1996. Í málinu reyndi ekki á hvernig ráðning M í starf leiðbeinanda hefði horft við gagnvart H, þar sem umsókn til undanþágunefndar grunnskóla um heimild til ráðningar M var afturkölluð. Með hliðsjón af því hvernig ráðningarmál við R skipuðust var talið að óvönduð stjórnsýsla við meðferð málsins hjá skólanum gæti ekki ein og sér bakað ríkinu fébótaskyldu. Við úrlausn málsins var jafnframt litið til þess að M var ráðinn í annað starf en H sótti um. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna ríkið og B af kröfum H.