Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 13. gr. laga nr. 78/1997 — Lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. maí 2020

E-5926/2019

Stórólfshvolssókn (Jón Magnússon lögmaður) gegn kirkjuráði vegna Jöfnunarsjóðs sókna (Gestur Jónsson lögmaður)

Hafnað var kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Ekki var fallist á að tveir nefndarmenn væru vanhæfir til að fjalla um málið á þeirri forsendu að þeir hefðu áður tekið þátt í úrskurði um sama ágreiningsefni. Jafnframt var því hafnað að í greinargerð formanns nefndarinnar, í dómsmáli sem stefnandi höfðaði gegn nefndinni, hefði að geyma einhverjar yfirlýsingar sem valdið gætu vanhæfi hans eða annarra nefndarmanna. Þá var niðurstaða dóms á því byggð að stefndi hafi staðið rétt að málskoti til nefndarinnar í öndverðu og tilkynning hans til nefndarinnar, eftir að fyrri úrskurður hennar um sama efni hafði verið ógiltu með dómi, væri í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar. Loks var því hafnað að dráttur á málsmeðferð fyrir áfrýjunarnefndinni leiddu til ógildingar úrskurðar hennar.