Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 37. gr. laga nr. 77/2000 — Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
Þáverandi lögmaður G fór þess á leit við vátryggingarfélagið V að tekið yrði upp að nýju uppgjör skaðabóta til G vegna umferðarslyss sem hann varð fyrir árið 1999. Í tilefni þessarar beiðni um endurupptöku bótauppgjörs leitaði V til Y og óskaði álits hans. Lögmaður G undirritaði þá, með skírskotun til umboðs frá G þar sem hann veitti lögmanninum fulla heimild til að fá allar upplýsingar úr sjúkraskrám, yfirlýsingu á álitsbeiðnina til Y er veitti Y heimild til öflunar gagna vegna álits hans. G sætti sig ekki við niðurstöðu álitsgerðar Y og í framhaldinu beindi hann kvörtun til Persónuverndar meðal annars um það að Y hefði farið ólöglega inn í sjúkraskrá sína í tölvukerfi LSH. Persónuvernd úrskurðaði að áritun lögmanns G á álitsbeiðnina hefði ekki verið nægilega ótvíræð til að fullnægja kröfum um samþykki fyrir vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga samkvæmt lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og hefði Y þannig verið óheimilt að fara í sjúkraskrá G við vinnslu álitsgerðarinnar. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að þar sem Y hefði verið fengið í hendur bæði fyrrgreint umboð frá G til lögmanns hans um fulla heimild lögmannsins til að fá allar upplýsingar úr sjúkraskrám G og jafnframt yfirlýsingu lögmanns G á álitsbeiðnina um að honum væri heimilt að afla gagna við gerð álitsgerðarinnar, hefði lögmanni G mátt vera ljóst að Y teldi sér heimilt að afla upplýsinga úr sjúkraskrám í þeim tilgangi að nota þau við álitsgerð sína. Þá mátti G einnig vera fyllilega ljóst að fyrrgreint umboð hefði verið gert í því skyni að sérfræðingi, sem fenginn yrði til álitsgerðar, yrði fært að afla þeirra læknisfræðilegu gagna, sem hann teldi nauðsynleg, enda hefði G lýst því yfir að lögmaður hans hefði ekki farið út fyrir umboð sitt. Þegar allt var virt þótti Y ekki hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 77/2000. Var því felldur úr gildi úrskurður Persónuverndar um að Y hefði verið óheimilt að fara í sjúkraskrá G.
Stefnandi krafðist þess að úrskurður Persónuverndar frá 27. febrúar 2006 yrði felldur úr gildi. Á það var ekki fallist og voru stefndu því sýknuð af kröfu stefnanda í málinu.