Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 12. gr. laga nr. 77/2000 — Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2012

E-2585/2011

Jón Magnússon (Jón Magnússon hrl) gegn Persónuvernd (Óskar Thorarensen hrl)

Kröfu stefnanda um að ákvörðun stjórnar Persónuverndar um heimild Seðlabankans til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits yrði dæmd ólögmæt vísað frá dómi. Ekki var talið að stefnandi hefði sýnt fram á einstaklega, beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfunnar, eins og hún væri fram sett.

Hæstiréttur birt 3. september 2002

373/2002

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis (Kristján Þorbergsson hrl) gegn Oddi Ingimarssyni (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Aðför. Innsetning.

O var talið heimilt að fá fullan og ótakmarkaðan aðgang að skrá yfir stofnfjáreigendur S, sem tilgreindi nafn stofnfjáreiganda, heimilisfang og kennitölu, ásamt stofnfjáreign hvers þeirra, með þeim hætti að hann fengi að rita niður upplýsingar úr skránni.