Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 4. gr. laga nr. 76/2008 — Lög um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar o.fl.
D ehf. höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu I ohf. vegna hagnaðarmissis sem leiddi af ákvörðun I ohf. um að semja ekki við D ehf. um verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í kjölfar útboðs sem D ehf. tók þátt í árið 2014. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á með D ehf. að I ohf. hefði borið að fylgja stjórnsýslulögum eða öðrum almennum reglum stjórnsýsluréttar við forvalið og útleigu verslunarrýmis í flugstöðinni. Þá var hvorki fallist á að þágildandi lög nr. 84/2007 um opinber innkaup né lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða hefðu gilt um útboð I ohf. Jafnframt væri ósannað að I ohf. eða nefndarmenn í matsnefnd um útboðið hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi við mat og meðferð á tilboði D ehf. Yrði ekki annað ráðið af gögnum málsins en að vandað hefði verið til forvalsins, forsendur þess hefðu legið ljósar fyrir í útboðsgögnum, jafnræðis verið gætt og að lögmæt og málefnaleg sjónarmið hafi ráðið för við mat á tilboði D ehf. Við það mat yrði einnig að hafa í huga tilgang I ohf., sem væri að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugstöðvarinnar, og að I væri sem rekstraraðila hennar heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná þeim tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt. Yrði því að játa I ohf. ákveðið svigrúm við mat á því hvaða tilboð og viðskiptahugmyndir féllu best að tilgangi félagsins þannig að markmiðum þess um þjónustu við farþega og hagnað fyrir rekstur flugstöðvarinnar yrði sem best náð. Skilyrði almennu skaðabótareglunnar um saknæma og ólögmæta háttsemi væru því ekki uppfyllt í málinu og var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna I ohf. af kröfum D ehf.
Sýknað af kröfu um viðurkenningu bótaábyrgðar vegna forvals vegna verslunarreksturs í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.