Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 92. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 8. mars 2007

345/2006

Kaupþing banki hf (Kristján Þorbergsson hrl) gegn ríkisskattstjóra (Atli Gíslason hrl)

Deilt var um hvort að K væri skylt að afhenda R sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf og aðila að þeim viðskiptum á árinu 2003 sem K hafði umsjá með. R hélt því fram að sú skylda hvíldi ótvírætt á K á grundvelli 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. K taldi að allan vafa um efni ákvæðisins yrði að túlka borgurunum í hag. Þá hefðu skattayfirvöld brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með kröfu sinni um framangreindar upplýsingar, auk þess sem veiting slíkra upplýsinga bryti í bága við 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var í Hæstarétti, segir að tilgangur 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 sé málefnalegur og beiting R á henni hafi verið innan meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Ákvæðið feli í sér skyldu fyrir K að veita umbeðnar upplýsingar og þagnarskylda á grundvelli 58. gr. laga nr. 161/2002 víki fyrir þeirri skyldu.

Hæstiréttur birt 8. mars 2007

333/2006

Glitnir banki hf (Jóhannes Rúnar Jóhannesson hrl) gegn ríkisskattstjóra (Atli Gíslason hrl)

Deilt var um hvort að G væri skylt að afhenda R sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf og aðila að þeim viðskiptum á árinu 2003 sem G hafði umsjá með. R hélt því fram að sú skylda hvíldi ótvírætt á G á grundvelli 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. G taldi að allan vafa um efni ákvæðisins yrði að túlka borgurunum í hag. Þá hefðu skattayfirvöld brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með kröfu sinni um framangreindar upplýsingar, auk þess sem veiting slíkra upplýsinga bryti í bága við 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var í Hæstarétti, segir að tilgangur 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 sé málefnalegur og beiting R á henni hafi verið innan meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Ákvæðið feli í sér skyldu fyrir G að veita umbeðnar upplýsingar og þagnarskylda á grundvelli 58. gr. laga nr. 161/2002 víki fyrir þeirri skyldu.

Hæstiréttur birt 8. mars 2007

325/2006

Landsbanki Íslands hf (Halldór Jónsson hrl) gegn ríkisskattstjóra (Atli Gíslason hrl, Karl Ólafur Karlsson hdl)

Deilt var um hvort að L væri skylt að afhenda R sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf og aðila að þeim viðskiptum á árinu 2003 sem L hafði umsjá með. R hélt því fram að sú skylda hvíldi ótvírætt á L á grundvelli 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. L taldi að allan vafa um efni ákvæðisins yrði að túlka borgurunum í hag. Þá hefðu skattayfirvöld brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með kröfu sinni um framangreindar upplýsingar, auk þess sem veiting slíkra upplýsinga bryti í bága við 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var í Hæstarétti, segir að tilgangur 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 sé málefnalegur og beiting R á henni hafi verið innan meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Ákvæðið feli í sér skyldu fyrir L að veita umbeðnar upplýsingar og þagnarskylda á grundvelli 58. gr. laga nr. 161/2002 víki fyrir þeirri skyldu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2006

E-4966/2005

Kaupþing banki hf (Árni Harðarson hdl) gegn Ríkisskattstjóra (Karl Ólafur Karlsson hdl)

Kaupþing banka hf. var gert skylt, samkvæmt 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt, að afhenda skattstjórum eða umboðsmönnum þeirra sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf og aðila að þeim viðskiptum á árinu 2003, sem stefnandi hafði umsjá með, en þess hafði ríkisskattstjóri krafist í auglýsingu í Stjórnartíðindum 7. janúar 2004 og með bréfi dags. 25. maí 2004.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2006

E-4751/2005

Glitnir hf (Arnar Þór Jónsson hdl) gegn Ríkisskattstjóra (Karl Ólafur Karlsson hdl)

Glitni hf. var gert skylt, samkvæmt 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt, að afhenda skattstjórum eða umboðsmönnum þeirra sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf og aðila að þeim viðskiptum á árinu 2003, sem stefnandi hafði umsjá með, en þess hafði ríkisskattstjóri krafist í auglýsingu í Stjórnartíðindum 7. janúar 2004 og með bréfi dags. 25. maí 2004.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2006

E-4727/2005

Landsbanki Íslands hf,útibú (Halldór Jónsson hrl) gegn Ríkisskattstjóra (Karl Ólafur Karlsson hdl)

Landsbanka Íslands hf. var gert skylt, samkvæmt 2. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt, að afhenda skattstjórum eða umboðsmönnum þeirra sundurliðaðar upplýsingar um öll viðskipti með hlutabréf og aðila að þeim viðskiptum á árinu 2003, sem stefnandi hafði umsjá með, en þess hafði ríkisskattstjóri krafist í auglýsingu í Stjórnartíðindum 7. janúar 2004 og með bréfi dags. 25. maí 2004.