Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 24. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt
Stefnandi krafðist þess að úrskurður yfirskattanefndar frá 26. september 2008 yrði felldur úr gildi að hluta og breytt þannig að tekjuviðbót í skattskilum stefnanda vegna meints söluhagnaðar af sölu á eignarhluta í Bónus sf. við kaup stefnanda á hlutabréfum í Hagkaupum hf. yrði felld niður. Til vara var þess krafist að teljuviðbótin yrði lækkuð og var fallist á það en ekki á aðalkröfuna. Einnig var þess krafist að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi að hluta og breytt þannig að tekjuviðbót vegna meintra tekna af skiptum á hlutabréfum í stað hluta í Baugi hf. yrði felld niður en til vara að miðað yrði við lægri tekjuviðbót. Á þessar kröfur var ekki fallist.