Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 6. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 1. júní 2011

724/2009

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari) gegn Eysteini Gunnari Guðmundssyni (Jón Einar Jakobsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

E var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og almennum hegningarlögum í starfi sínu fyrir þrjú einkahlutafélög. Talið var sannað að E hefði í reynd farið með stjórn þessara félaga á þeim tímabilum er ákæra málsins tók til og hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefið að sök að undanskildum einum þætti ákæruliðar. Hafði E verið gefið að sök að hafa komið sér undan greiðslu tekjuskatts vegna einkahlutafélagsins A að fjárhæð 945.614 krónur vegna gjaldársins 2003, en þar sem ekki hefðu komið fram skýringar á þeim mismun sem var á úrskurði ríkisskattstjóra 30. mars 2007 og skattbreytingarseðli sama dag þar sem tekjuskattur félagsins hefði verið talinn 0 krónur var hann sýknaður. Talið var að það hefði verið ótvírætt undir E komið að annast skil vegna reksturs einkahlutafélaganna þriggja. Á þessu hefði E borið sjálfstæða refsiábyrgð að lögum. Þegar virt væru lagaákvæði sem kvæðu skýrt á um fésektarlágmark væru ekki efni til að líta til fullyrðinga E um ætlaða samábyrgð annars einstaklings vegna starfa hans í þágu félags. Slíkt kæmi eingöngu til greina ef fleiri menn hefðu verið ákærðir og sakfelldir fyrir sömu brot. Voru brot E talin stórfelld og yrði því að miða við þrefalda fjárhæð vanskila við ákvörðun sektar. Var E gert að sæta fangelsi í 15 mánuði og greiða 90.300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í 12 mánuði.

Hæstiréttur birt 10. apríl 2008

132/2007

Ákæruvaldið gegn Hrafni Sturlusyni (Jón Höskuldsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

A lenti í umferðarslysi í mars 1995 og varð fyrir varanlegu líkamstjóni. Óumdeilt var tryggingafélagið S hf. bæri að bæta honum tjónið úr slysatryggingu ökumanns en aðilar höfðu deilt um fjárhæð bótanna. S hf. greiddi inn á kröfuna og gerði síðan upp við A 14. febrúar 2002 samkvæmt yfirmatsgerð sem þá lá fyrir. A höfðaði mál 14. mars 2005 og krafðist hærri bóta. Héraðsdómur féllst á það og dæmdi S hf. til að greiða A eftirstöðvar bótanna með vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga frá 24. apríl 1997 til 24. maí 2001 og dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. S hf. greiddi A fjárhæðina ásamt vöxtum samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga frá 14. mars 2001 til 14. mars 2005 en áfrýjaði svo málinu. Taldi félagið að vextir fyrir þann tíma væru fyrndir og að miða ætti upphafstíma dráttarvaxta við annað tímamark en samkvæmt héraðsdómi. Talið var að A hefði við uppgjörið 14. febrúar 2002 þurft að gera fyrirvara ef hann vildi viðhalda rétti til að ráðstafa eldri innborgunum inna á elstu áfallna vexti af þeim hluta kröfunnar sem hann þá taldi ógreiddan. Vextir sem fallið höfðu á kröfuna fyrir 14. mars 2001 voru taldir fyrndir samkvæmt 2. tl. 3. gr., sbr. 11. gr. laga nr. 14/1905. Í ljósi þess að meira en þrjú ár liðu frá uppgjörinu 14. febrúar 2002 og þar til málið var höfðað þótti rétt að beita heimild í niðurlagi 9. gr. laga nr. 38/2001 og hafna kröfu A um dráttarvexti fyrir þetta tímabil. Hins vegar var ekki fallist á að tafir á meðferð málsins í héraði vegna álitsumleitunar til læknaráðs ættu að hafa áhrif á upphafstíma dráttarvaxtakröfunnar. Samkvæmt þessu var S hf. var gert að greiða A dráttarvexti af þegar greiddum eftirstöðvum bótanna frá því að málið var höfðað og til greiðsludags.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júlí 2006

S-1129/2006

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson lögl. fulltr) gegn Hrafni Sturlusyni (Ólafur Thoroddsen hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld brot á skatta-, bókhalds- og hegningarlögum í sjálfstæðri atvinnustarfsemi og í rekstri einkahlutafélags. Einnig var honum gert að greiða 16.000.000 króna í sekt að viðlagðri 5 mánaða fangelsi sem vararefsingu.

Hæstiréttur birt 11. maí 2006

475/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Jóni Inga Ólafssyni (Hróbjartur Jónatansson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

J var ákærður fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt, lögum um tekjuskatt og eignarskatt og bókhaldslögum sem framkvæmdastjóri og stjórnarformaður einkahlutafélagsins R og í eigin rekstri. Hann var fundinn sekur um undanskot virðisaukaskatts, tekjuskatts og útsvars á árunum 1997-2001 sem nam samtals 8.422.736 krónum. Þá var hann jafnframt sakfelldur fyrir bókhaldsbrot. Brot J voru talin stórfelld, en hann hafði ekki áður sætt refsingu. Var refsing hans ákveðin fangelsi í átta mánuði, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Jafnframt var J dæmdur til greiðslu 25.000.000 króna sektar í ríkissjóð, en vegna þess hversu stórfelld brot hans voru þótti ekki unnt að takmarka sektarfjárhæð við lágmörk viðeigandi laga.

Hæstiréttur birt 4. nóvember 1999

285/1999

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Birni Einarssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

B var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um virðis­auka­skatt og lögum um tekju­skatt og eign­a­sk­att, með því að hafa sem framkvæmdastjóri hlutafélags ekki til­kynnt um virðis­auka­skatt­skylda starf­semi fé­lagsins og að hafa van­rækt að gera grein fyrir virðisaukaskattskyldri sölu vöru og þjónustu, sem fram fór í starf­semi fé­lagsins og að hafa van­talið tekjur og að hafa þannig orðið þess vald­andi að fé­lagið komst undan greiðslu virðisaukaskatts og tekju­skatts af þessum tekjum. Var B dæmdur til sektargreiðslu.

Hæstiréttur birt 14. október 1999

194/1999

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Ólafi Ólafssyni (Hallvarður Einvarðsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ó var ákærður fyrir að hafa svikið allháar fjárhæðir undan tekju- og virðisaukaskatti auk þess að hafa látið hjá líða að standa skil á innheimtum virðisaukaskatti. Var hann dæmdur til skilorðsbundinnar refsivistar auk þess sem honum var gerð sektarrefsing. Hvorki var talið tilefni til að álykta að andlegt heilsufar hans á þeim tíma sem brotin voru framin hefði verið með þeim hætti að 1. mgr. 16 gr. alm. hgl. gæti átt við, né að unnt væri að fella niður refsingu með stoð í 63. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 27. maí 1999

513/1998

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Helga Marteini Gunnlaugssyni (Björgvin Þorsteinsson hrl) og Stefáni Axel Stefánssyni (Róbert Árni Hreiðarsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

H og S, eigendur og fyrirsvarsmenn hlutafélagsins B, voru ákærðir fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt, bókhaldslögum og lögum um ársreikninga. S, sem var hluthafi í B, átti ekki sæti í stjórn félagsins og hafði hvorki prókúruumboð né fór með framkvæmdastjórn B. Var ekki talið nægilega sannað að staða S hjá félaginu hefði verið slík að hann gæti borið refsiábyrgð vegna þeirra brota sem ákært var fyrir, hvorki sem aðalmaður né hlutdeildarmaður. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu S staðfest. Talið var sannað að H hefði gerst sekur um stórfelld brot gegn lögum um virðisaukaskatt og var um fjárhæðir byggt á útreikningum skattrannsóknarstjóra. Þá var H sakfelldur fyrir brot gegn lögum um bókhald, en ekki voru talin vera skilyrði til að sakfella hann fyrir brot gegn lögum um ársreikninga. Var H dæmdur til fangelsisrefsingar, sem var að hluta til skilorðsbundin, og til greiðslu sektar.