Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 57. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
X og Y voru sakfelldir í héraði fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa í ágóðaskyni, lagt á ráðin og staðið saman að innflutningi á samtals 701,54 grömmum af kókaíni, sem flutt voru í tvennu lagi til Íslands frá Hollandi um Danmörku, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Y játaði aðild sína að innflutningnum, með þeim athugasemdum að hann hefði ekki lagt á ráðin um innflutninginn með X, sem ekki hefði komið að málum og þá kvað hann háttsemi sín ekki hafa verið í ágóðaskyni. Hæstiréttur staðfesti sakfellingu Y og var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi. X neitaði sök bæði við meðferð málsins í héraði og hjá lögreglu. Enginn meðákærðu bar hann sökum og ekkert vitni bar um aðild hans að ákæruefnunum. Lögreglan hleraði síma ákæru og fylgdist sérstaklega með ferðum X í um það bil ár áður en hann var handtekinn og kom fyrir hlerunartækjum í bifreið hans. Hins vegar var hvergi að finna í gögnum lögreglu staðfestingu á aðild X að umræddum fíkniefnainnflutningi. Samkvæmt þessu var ekki talið að fram hefði komið sönnun um háttsemi X er laut að þeim ákæruatriðum sem honum var gefið að sök. Var hann því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Stefnandi krafðist þess að felld yrði úr gildi ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps þar sem hafnað var kröfu stefnanda um að fjarlægt yrði sumarhús, sem reist hafði verið á sameiginlegri lóð stefnanda og húsbyggjenda, sem einnig var stefnt í málinu. Einnig krafðist stefnandi þess að stefndu yrðu dæmd in solidum til að hlutast til um að sumarhúsið yrði fjarlægt að viðlögðum dagsektum. Á þessar kröfur var ekki fallist. Fallist var hins vegar á skaðabótakröfu stefnanda á hendur hreppnum vegna tjóns er stefnandi varð fyrir vegna þess að byggingarleyfi, sem veitt hafði verið fyrir sumarhúsinu, var ólögmætt þar sem ekki hafði verið aflað samþykkis sameiganda.
Húsbyggjandi/seljandi dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna margvíslegra galla á nýrri fasteign. Vísað frá kröfum ex officio á hendur byggingarstjórum, þar sem ekki þótti í ljós leitt á hvaða verkþáttum hvor þeirra ábyrgð.