Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 4. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2013

443/2012

Hverfi ehf (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

H ehf. krafði R um skaðabætur vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna kostnaðar sem það greiddi vegna fyrirhugaðra framkvæmda á lóð félagsins. Byggði H ehf. m.a. á því að R hefði með óvandaðri og rangri málsmeðferð við breytingu á deiliskipulagi valdið honum tjóni, en úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi úr gildi ákvörðun skipulagsráðs R um breytingu á skipulaginu. Var það mat Hæstaréttar að H ehf. hefði ekki fært sönnur á, að sú ákvörðun starfsmanna R að haga málsmeðferð vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi með tilteknum hætti, teldist saknæm og skyldi baka R skaðabótaábyrgð. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu R.

Hæstiréttur birt 5. júní 2003

68/2003

Gunnar H. Sigurðsson Árni J. Friðbjarnarson (Karl Axelsson hrl) og Jón H. Sigurðsson (Halldór Jónsson hdl) gegn Vegagerðinni og Reykjavíkurborg (Ásgeir Magnússon hrl, Hilmar Magnússon hdl, Hjörleifur Kvaran hrl)

Þrír íbúar við Garðhús í Reykjavík, kröfðust þess að úrskurður umhverfisráðuneytisins, þar sem staðfestur var úrskurður Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar lagningar framhalds Hallsvegar, tveggja akreina vegar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi og framhjá húsum íbúanna, yrði felldur úr gildi sökum efnislegra annmarka. Héldu þeir því einkum fram að áhrif heildarframkvæmdarinnar hefðu ekki verið metin, þar sem meta hefði átt fjögurra akreina veg í stað tveggja, matið gæfi ekki nægilega til kynna líkleg áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið auk þess sem arðsemismat hennar væri ábótavant. Fallist var á að lagning tveggja akreina frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi stæðist sem sjálfstæð framkvæmd og væri eðlileg með tilliti til umferðar um hverfið enda hefði hún verið fyrirhuguð frá upphafi og tekið tillit til hennar við hönnun hverfisins. Var því staðfest sú úrlausn héraðsdóms að sjálfstætt mat á umhverfisáhrifum þeirrar framkvæmdar hefði mátt fara fram. Kæmi hins vegar til frekari framkvæmda við Hallsveg og tengingar við aðrar umferðaræðar yrði að fara fram nýtt mat vegna þeirra og yrði þá að taka fullt tillit til byggðarinnar við Garðhús. Þá hefði með lækkun vegarins og fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum í samráði við húseigendur verið uppfyllt ákvæði reglugerðar nr. 933/1999 um hávaða auk þess sem ekki væri annað komið fram en að útreikningar á arðsemi framkvæmdarinnar hefðu verið gerðir með fullnægjandi hætti. Voru V og R því sýknaðar af kröfum íbúanna.