Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 23. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 5. mars 2013. Hann krefst þess aðallega að viðurkennt verði að útgáfa byggingarleyfa vegna breytinga á íbúðarhúsi og byggingar bílskúrs að Álfhólsvegi 61 í Kópavogi sé ólögleg. Einnig krefst hann þess að stefndu Jóni Guðmundssyni og Ernu Jónsdóttur verði gert að viðlögðum dagsektum að fjarlægja fyrrgreindan bílskúr og viðbyggingu eða borðstofu á norðurhlið hússins og færa þannig útlit þess til fyrra horfs í samræmi við gildandi teikningu af því frá 1944. Til vara gerir áfrýjandi þá kröfu að í stað þess að fjarlægja bílskúrinn verði stefndu Jóni og Ernu gert að viðlögðum dagsektum að lækka hann í 2,7 metra að efri brún plötu eða efri brún veggjar. Í báðum tilvikum krefst áfrýjandi málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndu krefjast staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
Með nýju aðalskipulagi, sem samþykkt var á árinu 2007, var flugvöllurinn á Ó felldur út af skipulagi en H hafði á árinu 1987 fengið leyfi til byggingar flugskýlis við flugvöllinn. Í málinu krafðist H þess að F leysti til sín flugskýlið og greiddi honum innlausnarverð sem byggði á matsgerð dómkvadds matsmanns. Féllst Hæstiréttur á kröfu H um að F innleysti flugskýlið þar sem breytt skipulag væri ástæða þess að H gæti ekki lengur nýtt það eins og hann ætlaði þegar hann byggði það og breytingin væri til þess fallin að rýra verðgildi flugskýlisins. Á hinn bóginn var hafnað kröfu H um að F væri gert skylt að greiða honum innlausnarverð á grundvelli matsgerðar þar sem sú krafa væri ekki í samræmi við ákvæði 3. mgr. 33. gr. þágildandi skipulagslaga nr. 73/1997 um skyldu matsnefndar eignarnámsbóta til að ákveða kaupverð.
Hjörtur Þór Hauksson gegn
Fjallabyggð, kveðinn og upp svohljóðandi
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um að honum yrði gert skylt að innleysa flugskýli á flugvellinum á Ólafsfirði, sem hafði verið aflagður. Ennfremur sýknaður af varakröfu um skaðabætur vegna þess að flugskýlið nýttist ekki sem slíkt, eftir að flugvöllurinn var lagður niður.