Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 24. gr. laga nr. 65/1976 — Jarðalög

Landsréttur birt 20. maí 2022

228/2021

Einhyrningur ehf (Áslaug Árnadóttir lögmaður) gegn Útgerðarfélaginu Hvoli ehf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að heimilt hefði verið með kaupsamningi árið 1996 að skilja veiðirétt í Eystri-Rangá frá jörðinni Hjarðartúni. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að þegar Ú ehf. seldi jörðina Hjarðartún í umrætt sinn og undanskildi við söluna hluta hennar ásamt veiðirétt í Eystri-Rangá var búskapur aflagður á jörðinni og enginn átti þar fasta búsetu. Taldist jörðin því ekki landareign í skilningi 4. mgr. 2. gr. laga nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði þar sem þeir hagsmunir sem ákvæðinu var ætlað að tryggja voru ekki fyrir hendi. Samkvæmt því var ekkert í lögum sem stóð í vegi þess að með kaupsamningi um jörðina væri undanskilinn veiðiréttur í Eystri-Rangá fyrir því landi sem einnig var undanskilið við söluna og liggur að bökkum árinnar. Var sú ráðstöfun einnig í samræmi við reglu 1. mgr. 2. gr. laga nr. 76/1970 sem aftur byggði á þeirri fornu reglu í íslenskum rétti að hver maður eigi vatn og veiði fyrir landareign sinni. Var Ú ehf. sýknað af kröfum E ehf. í málinu.