Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 2. gr. laga nr. 63/1969 — Lög um verslun með áfengi og tóbak

Hæstiréttur birt 11. apríl 2011

187/2011

HOB-vín ehf (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (Skúli Bjarnason hrl)

H kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli þess á hendur Á var vísað frá dómi. H rak innflutnings- og heildverslun sem flutti inn nokkrar áfengistegundir. Í héraði hafði H uppi þrjár viðurkenningarkröfur á hendur Á. Krafðist hann þess í fyrsta lagi að viðurkennt yrði að Á hefði verið óheimilt að synja honum um reynslusölu á tilteknum áfengistegundum. Í öðru lagi að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Á vegna fjártjóns af synjuninni og í þriðja lagi að viðurkennt yrði að Á væri óheimilt að gera kröfu til H um tilteknar merkingar á fjórum tilteknum áfengistegundum. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að samkvæmt 60. gr. stjórnarskrárinnar skæru dómstólar úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda og gætu þannig ógilt ákvarðanir framkvæmdarvaldshafa ef þeim væri áfátt að formi eða efni. Af 2. gr. stjórnarskrárinnar leiddi að almennt væri ekki á færi dómstóla að taka nýjar ákvarðanir um málefni sem stjórnvöldum væru falin með lögum og ógildanlegar kynnu að vera að eða gefa stjórnvöldum fyrirmæli um efnislegt innihald slíkra ákvarðana. Var niðurstaða héraðsdóms um frávísun fyrsta og þriðja kröfuliðar H því staðfest. Hvað varðar annan lið kröfugerðar H taldi Hæstiréttur að H hefði ekki stutt sjónarmið sín um fjártjón við gögn sem þó ættu að vera honum tiltæk né gert viðhlítandi grein fyrir þeim sjónarmiðum og viðmiðunum sem leggja ætti til grundvallar við ákvörðun um tjón hans vegna missis hagnaðar. Var þessi kröfuliður því talinn vanreifaður og niðurstaða héraðsdóms um frávísun hans einnig staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. febrúar 2011

E-823/2011

Vín Tríó ehf (Birgir Tjörvi Pétursson hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

Komist var að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir ÁTVR, þar sem hafnað var að kaupa af stefnanda tvær áfengistegundir sem innihéldu koffín, hafi ekki haft viðhlítandi lagastoð. Staðfesting fjármálaráðuneytisins á þessum ákvörðunum var því felld úr gildi auk þess sem stefnanda voru dæmdar skaðabætur úr hendi íslenska ríkisins.

Hæstiréttur birt 7. júní 2005

212/2005

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl) gegn HOB víni ehf (Stefán Geir Þórisson hrl)

Fallist var á þá kröfu stefnda í einkamáli að óskað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á því, hvort það stæðist tiltekin ákvæði EES-samningsins, að ÁTVR krefðist þess af birgjum sínum, að þeir afhentu fyrirtækinu áfengi til smásölu á sérstakri gerð vörubretta og jafnframt að verð vörubrettis væri innifalið í vöruverði.