Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 5. gr. laga nr. 60/1994 — Lög um vátryggingastarfsemi

Hæstiréttur birt 11. febrúar 2016

157/2015

Vátryggingafélag Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson hrl) gegn A (Steingrímur Þormóðsson hrl)

A krafði V hf. um greiðslu bóta vegna líkamstjóns sem hann hlaut í starfi sínu sem háseti. Höfðu aðilar samið um bætur vegna slyssins á grundvelli matsgerðar í maí 2010 og var eingreiðsluverðmæti fullra bóta frá almannatryggingum og lífeyrissjóði A dregið frá örorkubótunum. Tók A við bótunum með fyrirvara um niðurstöðu örorkumats og frádrátt. Í desember 2010 var A tilkynnt að SÍ teldu hann ekki eiga rétt á lífeyri frá almannatryggingum og voru honum greiddar eingreiðslubætur vegna örorku. Greiddi V hf. því A mismun hinna eingreiddu bóta og þess eingreiðsluverðmætis örorkubóta frá almannatryggingum sem dregið hafði verið frá í uppgjöri aðila. Deildu aðilar í málinu um við hvaða miskastig og örorku skyldi miða og hvort V hf. væri heimill framangreindur frádráttur, sbr. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms um að leggja til grundvallar matsgerðir dómkvaddra manna frá árinu 2013 sem mátu miska og örorku A hærri en miðað hafði verið við í uppgjörinu árið 2010. Í dómi réttarins kom fram að tjónþola bæri að takmarka tjón sitt, sbr. 2. mgr. 5. gr. skaðabótalaga. Hefði V hf. ítrekað skorað á A að leita endurskoðunar á ákvörðun SÍ án þess að brugðist hafi verið við því. Hefði V hf. því aflað matsgerðar árið 2013 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að A ætti rétt á örorkubótum lífeyristrygginga almannatrygginga ef hann sækti um þær og var hún lögð til grundvallar. Þar sem V hf. hefði þegar greitt A bætur og dregið frá eingreiðsluverðmæti réttar A til greiðslna frá almannatryggingum í samræmi við niðurstöðu héraðsdóms var talið að V hf. hefði gert upp tjón A að fullu. Var V hf. því sýknaður af kröfu A.

Hæstiréttur birt 12. maí 2010

449/2009

Sandra, Jónsdóttir, Jón Már, Halldórsson og Kristín Jónsdóttir (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum, tryggingum hf, Brynjari, Sigurðssyni, Hrefnu, Björk Ólafsdóttur og Tryggingamiðstöðinni hf (Valgeir Pálsson hrl)

S varð fyrir líkamstjóni 13. febrúar 2004 í umferðarslysi þegar B kom akandi á bifreið í eigu H úr gagnstæðri átt og hafnaði á bifreiðinni, sem S ók. Bifreið H var með ábyrgðartryggingu hjá SA. S fékk þungt höfuðhögg við áreksturinn en afleiðingar þess voru heilaáverki með dreifðum skemmdum. Óumdeilt var að SA, B og H báru fulla fébótaábyrgð á tjóni S. Uppgjör fór fram og tók S við greiðslum með fyrirvara og höfðaði máli til heimtu frekari bóta. Hafnað var aðalkröfu S um ómerkingu héraðsdóms, enda varð ekki litið svo á að slíkur misbrestur hefði orðið á því að taka afstöðu til einstakra af fjölmörgum málsástæðum S að varðað gæti ómerkingu dómsins. Einnig var hafnað kröfu S um frekari bætur fyrir varanlegan miska þar sem fallist hafði verið á boð um hærri miskabætur samkvæmt 3. mgr. 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Aftur á móti var tekin til greina krafa um miskabætur samkvæmt 26. gr. sömu laga þar sem B var talinn hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi. Þá var talið að útreikningur bóta fyrir varanlega örorku S, sem var 18 ára að aldri á öðru ári í námi við framhaldsskóla þegar hún varð fyrir slysinu, ætti að fara fram miðað við lágmarkstekjur, sbr. 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Jafnframt voru ekki tekin til greina andmæli S við því að til frádráttar bótum kæmi eingreiðsluverðmæti greiðslna til hennar úr almannatryggingum. Krafa S um bætur vegna kostnaðar af sjúkraþjálfun, þjónustu á göngudeild sjúkrahúss og lyfjum var studd áliti læknis og í útreikningum í matsgerð, sem S hafði aflað, var tekið tillit til stuðnings af félagslegum toga, sem hún gæti notið í þessum efnum. Matsgerðinni hafði ekki verið hnekkt að þessu leyti og var krafa S því tekin til greina. Hins vegar var hafnað kröfu S um bætur vegna erfiðari heimilisstarfa, frekara náms eða starfsþjálfunar og aukins kostnaðar af framfærslu fatlaðra, þar sem tjón að þessu leyti hefði ekki verið leitt í ljós. Loks var ekki tekin til greina krafa S á hendur T um bætur úr slysatryggingu ökumanns og heldur ekki krafa foreldra S á hendur SA, B og H vegna tekjutaps, sem þau urðu fyrir vegna umönnunar S.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. júlí 2009

E-6177/2008

Sandra Jónsdóttir Jón Már Halldórsson og Kristín Jónsdóttir (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og Brynjari Sigurðssyni og Hrefnu Björk Ólafsdóttur (Ásgerður Ragnarsdóttir hdl) og Tryggingamiðstöðinni hf. og til vara (Valgeir Pálsson hrl)

Í málinu var krafist skaðabóta vegna umferðarslyss en ágreiningur í málinu snerist um það hvort fullar bætur hefðu verið greiddar samkvæmt lögum. Dómurinn taldi stefnendur ekki eiga rétt á frekari bótum en þegar höfðu verið greiddar og var sýknað af öllum kröfum stefnenda í málinu.