Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 3. gr. laga nr. 6/2007 — Lög um Ríkisútvarpið ohf.
Lucia Celeste Molina Sierra og Birnir Orri Pétursson (
Dögg Pálsdóttir hrl)
gegn
Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (
Kristján Þorbergsson hrl)
L og B höfðuðu mál til heimtu bóta vegna miska sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna umfjöllunar P, H, J, S og Þ í dægurmálaþættinum Kastljósi og í fréttatímum útvarps og sjónvarps Ríkisútvarpsins um umsókn L um íslenskan ríkisborgararétt. Kjarni umfjöllunarinnar var hvort meðferð umsóknarinnar hefði verið óeðlileg og það helgast af tengslum L við þáverandi umhverfisráðherra. Var málatilbúnaður L og B reistur á því að umfjöllunin hefði falið í sér ólögmæta meingerð í þeirra garð. Taldi Hæstiréttur að ætla yrði fjölmiðlum svigrúm til umfjöllunar um málefni sem þetta, sem ætti erindi til almennings og væri hluti af þjóðfélagsumræðu. Viðleitni H, J, S og Þ til að sýna fram á að afgreiðsla umsóknar L væri tortryggileg og að valdi hefði verið misbeitt hefði ekki beinst að L og B heldur að þáverandi umhverfisráðherra og allsherjarnefnd Alþingis. Hins vegar var talið að umfjöllun H, J, S og Þ í Kastljósi og viðleitni þeirra til að sýna fram á að meðferð og afgreiðsla umsóknar L hefði verið óeðlileg hefði borið ofurliði vilja þeirra til að fara rétt með staðreyndir og til að leiðrétta rangfærslur og gera viðhlítandi grein fyrir lagagrundvelli málsins. Þótt fallast mætti á með L og B að P, H, J, S og Þ hefðu í ýmsum atriðum brotið þær skyldur sem á þeim hvíldu í starfi og ekki sýnt L og B þá tillitssemi sem ætlast hefði mátt til, þá hefði umfjöllunin um persónuleg atriði sem L og B vörðuðu verið svo samofin málefninu að útilokað hefði verið að greina þar skýrlega á milli. Yrðu einstaklingar að nokkru marki að þola að persónuleg málefni, er þá varða, kæmu í slíkum tilvikum til almennrar umfjöllunar. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu af kröfum L og B um miskabætur og að ekki væru skilyrði til að dæma refsingu vegna brota á 228. og 229. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Lucia Celeste Molina Sierra Birnir Orri Pétursson (
Dögg Pálsdóttir hrl)
gegn
Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (
Hlynur Halldórsson hdl)
Stefndu voru sýknuð af refsi-og bótakröfum stefnenda út af umfjöllun í Kastljósi og fréttum RUV vegna umsóknar stefnanda um íslenskan ríkisborgararétt.