Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. nr. 58/2007
J krafðist þess að felld yrði úr gildi ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík (S) um að veita G ehf. leyfi til reksturs veitingastaðar í tilteknum hverfiskjarna í Reykjavík og jafnframt úrskurður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins þar sem sú ákvörðun var staðfest. Reisti J kröfu sína á því annars vegar að G ehf. hefði sótt of seint um endurnýjun rekstrarleyfisins og hins vegar á því að þar sem breyting á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010 til 2030 hefði verið háð verulegum annmarka með því að ekki hefði verið um óverulega breytingu að ræða og því ekki heimilt að fara með hana eftir 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki var fallist á með J að G ehf. hefði sótt of seint um leyfið. Að því er varðaði málsástæðu J um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar vísaði Hæstiréttur til þess að breytingin hefði verið almenns eðlis og tekið til ótiltekins fjölda manna og lögaðila. Hefði G ehf. ekki sótt um breytingu á aðalskipulaginu, heldur framlengingu á rekstrarleyfi, og var samrýmanleiki starfseminnar við aðalskipulag aðeins eitt af skilyrðum fyrir því að verða mætti við umsókn hans. Ekki væri á færi G ehf. að taka til andsvara gegn málatilbúnaði J um atriði, sem vörðuðu undirbúning breytingarinnar á aðalskipulaginu og meðferð stjórnvalda um tillögu um hana, en henni hefði ekki verið hrundið með málsókn gegn borginni. Þegar af þeirri ástæðu var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu G ehf. og S af kröfu J.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli G gegn B og M var vísað frá dómi. Í málinu krafðist G þess að B og M yrðu dæmd óskipt til að endurskrá 1,767 kílógramma greiðslumark til framleiðslu sauðfjárafurða sem fært var af ættaróðali á það að nýju, að viðlögðum dagsektum. Til vara krafðist G skaðabóta úr hendi B. Var kröfugerð og málatilbúnaður G talin vera á þann veg að ekki yrði hjá því komist að vísa málinu í heild frá dómi.
Guðrún Fjóla Helgadóttir gegn
Bændasamtökum Íslands, Matvælastofnun, til réttargæzlu Sigurði Helga Helgasyni, Öldu, Þorsteinsdóttur, Þórsteini, Arnari Jóhannessyni, Sveini, Jóhannessyni, kveðinn, upp svohljóðandi og ú r s k
Stefnanda gerði aðallega kröfu á hendur stefndu in solidum um endurskráningu greiðslumarks til framleiðslu sauðfjárafurða á ættaróðal stefnanda, en til vara skaðabótakröfu á hendur stefnda, Bændasamtökum Íslands. Málinu vísað frá vegna ruglingslegs málatilbúnaðar.