Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 20. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2022

E-705/2022

Sjöfn Garðarsdóttir (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennt var að stefnda bæri að greiða stefnanda helming af munatjóni hennar, sem orsakast hafði af árekstri í hópakstri bifhjólamanna.

Hæstiréttur birt 3. mars 2011

514/2010

Sjóvá-Almennar tryggingar hf og Íslandsbanki fjármögnun (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) gegn Áhugamannafélaginu Golíat (Erlendur Þór Gunnarsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Á krafðist skaðabóta úr hendi S hf. og Í vegna tjóns sem hann varð fyrir í árekstri á Reykjanesbraut 23. maí 2008 milli jeppabifreiðar Á og fólksflutningabifreiðar sem báðum var ekið í suðurátt. Þegar áreksturinn varð hafði ökumaður fólksflutningabifreiðarinnar beygt út á vinstri akrein með það fyrir augum að aka fram úr jeppabifreiðinni, en á sama tíma beygði ökumaður jeppabifreiðarinnar henni inn á vinstri akrein þar sem hann hugðist aka inn á Nickel-svæðisveginn. Í héraði voru S hf. og Í taldir bera bótaábyrgð á helmingi tjóns Á. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að á þeim stað þar sem ökumaður fólksflutningabifreiðarinnar ákvað að aka fram úr jeppabifreiðinni var vegurinn merktur hálfbrotinni línu auk þess sem þar voru gatnamót. Ríkar kröfur hvíldu því á ökumanni fólksflutningabifreiðarinnar og bar honum að fullvissa sig um að skilyrðum væri örugglega fullnægt svo að aka mætti fram úr á eða við vegamót. Var héraðsdómur því staðfestur.