Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
9 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 102. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ákæruvaldið (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Birni Kjartanssyni (
Grímur Hergeirsson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)
gegn
Óskari Ingva Sigurðssyni (
Óskar Sigurðsson hrl)
Ákærði dæmdur til sektargreiðslur og sviptur ökurétti fyrir ýmis umferðarlagabrot, m.a. ölvunarakstur og hraðaakstur.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir nytjastuld og tveir þeirra að auki fyrir ölvunarakstur. Dæmt skilorðsbundið fangelsi, sektir og ökuréttarsvipting.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Theódóri Kristjánssyni (
Jón Egilsson hdl)
Karlmaður, sem játaði sök, sakfelldur fyrir ölvunarakstur og brot gegn valdstjórninni. Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (
Jón Fannar Kolbeinsson fulltrúi)
gegn
Eiríki Björnssyni (
Már Pétursson hrl)
Karlmaður sakfelldur fyrir ölvunarakstur.
Ákært fyrir ölvunarakstur. Ákærði bar við neyðarrétti. Sú málsvörn komst ekki að þar sem ökumaður bifreiðarinnar var sagður hafa verið á veitingastað rétt hjá og átti því að hafa yfirsýn þegar bifreiðin var dregin úr flæðarmálinu. Sakfellt.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Ásgeiri Heiðari Stefánssyni og Ásgrími Ragnars (
Sigmundur Hannesson hrl)
Með héraðsdómi hafði ÁH verið sakfelldur fyrir þrettán hegningarlagabrot, þar af ellefu þjófnaðarbrot, sem lutu að verðmætum hátt á fjórðu milljón krónur, auk nytjastuldar og hylmingar. Tíu þessara brota hafði hann framið í félagi við aðra menn. ÁR hafði í héraðsdómi verið sakfelldur fyrir fjögur þjófnaðarbrot, nytjastuld og umferðarlagabrot og verðmæti þau sem þjófnaðarbrot hans tóku til voru hátt í þrjár milljón krónur. Fjögur hegningarlagabrotanna hafði hann framið í félagi við aðra menn. Báðir mennirnir játuðu brot sín en áfrýjuðu málinu í því skyni að refsing þeirra yrði milduð. Við ákvörðun refsingar beggja var vísað til 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga að því er varðaði þau brot, sem þeir frömdu ásamt öðrum. Litið var til þess að auðgunarbrot þeirra hafi verið skipulögð og framin í því skyni að selja öðrum þýfið. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var staðfest niðurstaða héraðsdóms um 18 mánaða fangelsisvist ÁH. ÁR var einnig gert að sæta fangelsi í 18 mánuði. Þá var niðurstaða héraðsdóms um sviptingu ökuréttar ÁR í tvö ár staðfest.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Lawrence Joseph Muscat (
Kristján Stefánsson hrl)
L gekkst við að hafa ekið ölvaður. Var hann sakfelldur fyrir það brot í héraði og sviptur ökurétti ævilangt. L fór fram á að ákæruvaldið áfrýjaði dóminum þar sem mistök héraðsdómara hefðu leitt til þyngri refsingar og viðurlaga en lög hefðu staðið til. Áfrýjaði ákæruvaldið dóminum og kom fram í áfrýjunarstefnu að honum væri áfrýjað L til hagsbóta. Í greinargerð til Hæstaréttar krafðist ákæruvaldið hins vegar staðfestingar héraðsdóms. Hæstiréttur taldi að í héraði hefði L réttilega verið sviptur ökurétti ævilangt. Hins vegar hefði ákæruvaldinu ekki verið heimilt að auka við kröfur sínar í greinargerð fyrir Hæstarétti frá því sem fram kom í áfrýjunarstefnu. Var því fallist á varakröfu ákæruvaldsins og L dæmdur til að sæta ökuleyfissviptingu í tvö ár, auk þess sem honum var gert að sæta fangelsi í 30 daga.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Steingrími Njálssyni (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
S var ákærður fyrir að hafa þrívegis ekið undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda. Ekki var fallist á að honum hefði verið nauðugur kostur að aka í eitt skiptið vegna aðsúgs, sem gerður var að honum, enda hafi honum verið önnur úrræði tæk. Var niðurstaða héraðsdóms um ævilanga ökuréttarsviptingu og fangelsisvist staðfest en S átti að baki langan sakarferil og hafði m.a. sautján sinnum hlotið refsingu fyrir ölvun við akstur.