Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
12 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 101. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ekki var talið að ákvörðun um akstursbann hefði í raun verið tekin þrátt fyrir birtingu óundirritaðs skjals þess efnis, enda voru skilyrði akstursbanns ekki fyrir hendi.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri)
gegn
Atla Ívari Guðmundssyni (
Bjarni Hauksson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir of hraðan akstur á bifhjóli auk annarra umferðarlagabrota. Ákærði sviptur ökurétti. Kröfu um upptöku bifhjóls hafnað.
Ákæra sakfelld fyrir líkamsárás og nokkur umferðarlagabrot
Ákæra sakfelld fyrir líkamsárás og nokkur umferðarlagabrot
Ákæruvaldið (
Kristín Völundardóttir lögreglustjóri)
gegn
Birgi Fannari Péturssyni og Sigurði Fannari Grétarssyni (
Björn Jóhannesson hrl)
Tveir ungir karlmenn dæmdir til greiðslu sektar fyrir of hraðan akstur. Kröfu ákæruvalds um að ákærðu yrðu sviptir ökurétti var hins vegar hafnað.
Karlmaður sýknaður af ákæru um hraðakstur.
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn
X og Einari Helgasyni (sjálfur)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna, nytjastuld, þjófnað og ýmis umferðarlagabrot. Ákærði játaði sök vegna sumra brotanna en neitaðir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Hegningarauki. Dæmdur til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttar í sjö mánuði.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Stefáni Óskari Orlandi (
Ólafur Björnsson hrl)
Ákært fyrir ýmis umferðarlagabrot. Ákærði neitaði sök í tveimur ákæruliðum. Sakfellt. Dæmdur til greiðslu 115.000 króna sektar og sviptur ökurétti í 3 mánuði vegna punkta auk þess að greiða sakarkostnað.
Ákært fyrir ýmis umferðarlagabrot. Ákærði játaði brot sín að hluta en neitaði að hafa ekið á 145 km hraða frá Eyrarbakka til Selfoss. Sakfellt.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X (Sjálfur)
Dæmd sekt fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Ákærði sviptur ökurétti vegna uppsafnaðra punkta.
Karlmaður ákærður fyrir að aka á 121 km hraða á Reykjanesbraut. Lögreglan hafði ekki skráð prófun ratsjár eftir mælingu í vettvangsskýrslu eins og reglur ríkislögreglustjóra gera ráð fyrir við notkun ratsjáa. Því sýknað af þeirri háttsemi. Ákærði viðurkenndi að hafa ekið á 90 km á sama stað og var sakfelldur fyrir það.
Karlmaður dæmdur til að greiða kr. 60.000.- í sekt fyrir að sinna ekki stöðvunarskyldu lögreglunnar. Ákærði var sviptur ökurétti í 3 mánuði vegna punkta auk þess að greiða málsvarnarlaun. Sýknaður af því að hafa notað þokuljós þar sem ekki var talið sannað að veðurskilyrði til notkunar þeirra hafi ekki verið til staðar.