Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 6. mgr. 73. gr. laga nr. 45/1998 — Sveitarstjórnarlög
H ehf. og F höfðuðu mál á hendur L ohf. og kröfðust viðurkenningar á því að lánssamningur milli þeirra frá árinu 2007 væri lánssamningur í íslenskum krónum bundinn ólögmætri gengistryggingu. Talið var að meginefni samningsins, tilgreining á lánsfjárhæð og vaxtaákvæði hans, bæri ótvírætt með sér að lánið hefði verið gilt lán í erlendum gjaldmiðlum. Þá var ekki fallist á með H ehf. og F að samskipti aðila í aðdraganda samningsgerðarinnar hefði sýnt fram á að ætlunin hefði verið að taka lán í íslenskum krónum eða að skilyrði 32. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga hafi verið fyrir hendi. Var L ohf. því sýknað af kröfu H ehf. og F.
Sveitarfélag sýknað af kröfu um greiðslu samkvæmt ábyrgð á skuld annars aðila.
K hf. krafði B um greiðslu eftirstöðva skuldabréfs, sem B hafði gengist í einfalda ábyrgð á, ásamt bankakostnaði. Misræmi var milli gagna málsins og málflutnings K hf. fyrir Hæstarétti um hvenær bréfið hefði verið gjaldfellt. Þá lá ekki fyrir sundurliðun og útreikningur á eftirstöðvum skuldabréfsins, en það bar ekki sjálft með sér hverjar eftirstöðvar þess hefðu verið. Krafa K hf. um bankakostnað var heldur ekki sundurliðuð eða studd gögnum. Þóttu kröfur K hf. því svo vanreifaðar að ekki væri unnt að leggja á þær dóm og var málinu því vísað frá héraðsdómi án kröfu.
Kaupþing banki hf gegn
Borgarfjarðarhreppur
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda á grundvelli 6. mgr. 73. gr. laga nr. 45/1998.