Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 60. gr. laga nr. 45/1998 — Sveitarstjórnarlög
O starfaði sem framkvæmdastjóri FV ehf. sem var í eigu sveitarfélagsins V. O var sagt upp störfum. Hann taldi uppsögnina hafa verið ólögmæta og krafðist skaða- og miskabóta. Talið var að þar sem sveitarfélagið V hefði falið einkahlutafélagi að annast tiltekin verkefni giltu ákvæði stjórnsýslulaga um ákvarðanir þess innan þess verksviðs. Lögin tækju hins vegar ekki til annarra þátta starfsemi einkahlutafélagsins, þar á meðal ráðning og uppsögn starfsmanna þess. Var því ekki talið að O gæti byggt á því að stjórnsýslureglna hefði ekki verið gætt við uppsögn hans. Þar sem samið hefði verið um að kjarasamningur opinberra starfsmanna skyldi gilda um störf O var FV ehf. talið óheimilt, í samræmi við ákvæði hans, að segja O upp án málefnalegra ástæðna. Þótti FV ehf. ekki hafa sýnt fram á þær. Uppsögn O var því talin ólögmæt og var FV ehf. dæmt til að greiða honum skaðabætur. Hins vegar var ekki talið sýnt fram á að fullnægt væri skilyrðum fyrir miskabótum.
Oddur Guðmundsson (
Tryggvi Þórhallsson hdl)
gegn
Fasteignum Vesturbyggðar ehf og Vesturbyggð til réttargæslu
Einkahlutafélag í eigu sveitarfélags dæmt til greiðslu skaðabóta vegna ólögmætrar uppsagnar framkvæmdastjóra félagsins. Einkahlutafélagið var hins vegar sýknað af miskabótakröfu framkvæmdastjórans fyrrverandi.