Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 29. gr. laga nr. 45/1994 — Vegalög

Hæstiréttur birt 22. október 2009

22/2009

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundsdóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu og Vegagerðinni (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl, Kristinn Bjarnason hrl, Magnús Baldursson hdl)

Í tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um H hafði V lýst þremur framkvæmdakostum. Áfrýjendur lögðu fram tvo framkvæmdakosti til viðbótar, sem þeir færðu rök fyrir að metnir skyldu samhliða kostum V. Í tillögu að matsáætlun sem V sendi til S í október 2006 var fjallað um þá framkvæmdakosti sem áfrýjendur lögðu til og hafnað að þeir yrðu teknir til mats. Í ákvörðun S 5. desember 2006 var fallist á matáætlunina með athugasemdum. V kærði ákvörðunina til umhverfisráðherra, sem með úrskurði 11. maí 2007 féllst á kröfu V um að felldur yrði úr gildi sá hluti hennar sem meðal annars laut að því að V skyldi meta framkvæmdakosti sem áfrýjendur höfðu lagt til. Áfrýjendur höfðuðu mál og kröfðust ógildingar á úrskurði umhverfisráðherra. Talið var að ekki væru slíkir formannmarkar á úrskurði umhverfisráðherra að ógildi varðaði. Þá var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að framkvæmdaaðili hefði forræði á því hvaða framkvæmdakostir uppfylltu markmið framkvæmdar, enda væri mat hans í þeim efnum reist á hlutlægum og málefnalegum grunni. Ekkert hefði komið fram í málinu er gæfi til kynna að leiðaval V hefði ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum. V hefði rökstutt að önnur leiðin, sem áfrýjendur lögðu til, stytti leiðina minna en aðrir kostir, umferðaröryggi væri áfátt þar sem hún lægi nærri þéttbýli og á henni væru margar tengingar við hliðarvegi. Talið var að þessi sjónarmið væru málefnaleg og vörðuðu tilgang og markmið framkvæmdarinnar með þeim hætti að ekki yrði haggað því mati framkvæmdaaðila að hafna þessum kosti til mats. Þá hefðu áfrýjendur ekki hrakið þau rök að hin leiðin væri innan þess öryggissvæðis sem krafist væri vegna flugvallarins. Var talið að þetta væri málefnaleg forsenda til að hafna sérstöku mati á þessum kosti. Þá fælist í úrskurði umhverfisráðherra að tvær aðrar leiðir, sem deilt var um, kæmu til mats með óbeinum hætti og því væri ekki forsendur til að ógilda hann á þeim grunni að þessar leiðir yrðu ekki metnar. Voru V og Í sýknuð af kröfum áfrýjenda.

Hæstiréttur birt 19. mars 2009

425/2008

Dagbjartur Bogi Ingimundarson (Sigurður Sigurjónsson hrl) og Rafn Ingimundarson (Indriði Þorkelsson hdl) gegn Norðurþingi og Vegagerðinni (Jón Höskuldsson hrl, Eva Dís Pálmadóttir hdl, Reynir Karlsson hrl, Jón Ögmundsson hdl)

D og R áttu jörðina B. Næstu jarðir sunnan B voru P og K sem voru í eigu íslenska ríkisins. Árið 2002 hóf V undirbúning að gerð nýs vegar. Tveir kostir lágu fyrir um legu vegarins, annars vegar yfir B og síðan K en hins vegar yfir P og síðan K. Síðar varð til hugmynd að nýrri leið sem vék af fyrst nefndu leiðinni á kafla. Reis ágreiningur um hvaða leið skyldi valin. Sveitarfélagið N gaf út framkvæmdaleyfi til V vegna vegar sem lá yfir B. D og R bönnuðu allar framkvæmdir á jörðinni B. Neytti V þá eignarnámsheimilar 45. gr. þágildandi vegalaga nr. 45/1994. Höfðuðu D og R mál gegn N og V og kröfðust ógildingar á veitingu framkvæmdaleyfis N til V og eignarnámi V á hluta jarðarinnar B. Ekki var talið sýnt fram á að N hafi brotið reglur stjórnsýslulaga við veitingu framkvæmdaleyfis til V. Hafi leyfisveitingin því ekki verið haldið slíkum annmörkum að varðað gæti ógildingu leyfisins og var N sýknað af kröfum D og R. Talið var að yfirmaður V eða löglærður fulltrúi í umboði hans hafi verið bær til að taka ákvörðun um eignarnám á grundvelli vegalaga. Þá var þeirri málsástæðu hafnað að engin lögmæt ákvörðun um eignarnám hafi verið tekin. Talið var að eignarréttur D og R hafi verið varinn af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar sem heimili því aðeins skerðingu þess réttar að almenningsþörf krefji, en við mat á því verði að gæta meðalhófs. Ef unnt hafi verið með ásættanlegum hætti að ná markmiði framkvæmdarinnar með því að leggja veginn um eigið land ríkisins hafi V borið að fara þá leið. Litið hafi verið svo á við mat á umhverfisáhrifum að allar veglínur sem til greina hafi komið hafi verið ásættanlegar. Um tiltekin atriði við leið yfir P og síðan K hafi verið ívið meiri ókostir en af hinum leiðunum, en sá munur hafi verið óverulegur. Umhverfisáhrif hafi því ekki getað réttlætt ákvörðun V um að leita eignarnáms. Fullyrðingar V um kosti þeirrar leiðar sem valin var af svokölluðum vegtæknilegum ástæðum og að kostnaður af henni væri minni voru ekki taldar studdar neinum gögnum. Málsástæða V um að vegalengdir milli þéttbýliskjarna yrðu styttri við þá leið en hinar var talin haldlaus. Þá yrðu sjónarmið ábúenda P og K um vegleið með engu móti lögð að jöfnu við afstöðu eigenda jarðanna, en D og R hafi eindregið lagst gegn því að verða sviptir eign sinni. Var skilyrði stjórnarskrárinnar um almenningsþörf ekki talið hafa verið uppfyllt til þess að V gæti beitt eignarnámi gagnvart D og R. Var krafa þeirra um ógildingu eignarnámsins því tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2008

E-4705/2007

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundardóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (Dýrleif Kristjánsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vegagerðinni (Kristinn Bjarnason hrl)

Íslenska ríkið og Vegagerðin sýknuð af kröfu nokkurra landeigenda um ógildingu úrskurðar umhverfisráðherra sem laut að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. maí 2008

E-5375/2007

Dagbjartur Bogi Ingimundarson Rafn Ingimundarson (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Vegagerðinni (Reynir Karlsson hrl) og Norðurþingi (Jón Höskuldsson hrl)

Sveitarfélagið Norðurþing og Vegagerðin sýknuð af kröfu tveggja landeigenda um ógildingu á útgáfu framkvæmdaleyfis sveitarfélags og ógildingu á eignarnámi Vegagerðarinnar.